7.8 C
Selfoss

Jónsmessuganga á Ingólfsfjall

Vinsælast

Á morgun, laugardaginn 24. júní 2021 kl. 14:00 verður boðið upp á Jónsmessugöngu upp á Ingólfsfjall. 

Gengið verður frá bænum Alviðru (Sjá á korti) eftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól, þar sem Ingólfur landnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp og niður er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Ætla má að gangan taki um 3 til 4 klukkustundir.

Mælt er með notkun göngustafa, góðum skóbúnaði, hlífðarfötum og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar.

Boðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu.

Þeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða, fallega, vel merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. 

Öllum er velkomið að koma en áhugasömum er bent á að senda línu á landvernd@landvernd.is svo viðburðarstjórnendur geti áætlað fjölda gesta og göngufólks.

Ingólfsfjall er 551 m hátt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu, í vestur, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt.

Ingólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann í vetursetu undir Ingólfsfjalli að því er segir í Landnámu.

Alviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðanes II er einnig friðland með merktum gönguleiðum, opið almenningi.

Nýjar fréttir