Í kringum 14 félagar Stangveiðifélags Selfoss voru mættir við árbakkann kl. 7 í morgun þegar Ölfusá fyrir landi Selfoss var opnuð í blíðskaparveðri. Líkt og fyrir ári var það Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Árborgar, sem tók fyrsta kastið undir leiðsögn Guðmundar Maríasar Jenssonar, formanns félagsins, en þetta var í fyrsta sinn sem sami aðili opnar ánna tvisvar. Þegar blaðamaður leit við hjá þeim félögum rúmlega átta var engin veiði komin hjá Braga.
Fyrsti laxinn kom kl. 8:05 í morgun og var það fyrrverandi formaður félagsins og heiðurfélagi nr. 5, Steindór Pálsson, sem veiddi hann. Laxinn var 11 pund, grálúsugur og nýgenginn. Laxinn veiddist á miðsvæðinu, á Grýlutúpu.
Í fyrra veiddust í Ölfusá 137 laxar og 106 sjóbirtingar.
![Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Árborgar, og Guðmundur Jensson, formaður Stangaveiðifélags Selfoss. Mynd: Dagskráin/BRV](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/06/5G3A7657.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/06/5G3A7669.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)