4.5 C
Selfoss

Gígja Marín átti besta frumsamda lagið í Skúrnum

Vinsælast

Undanfarnar vikur hafa þættirnir Skúrinn á Vísi, sem kostaðir eru af SS, kynnt sex tónlistarflytjendur sem keppt hafa um bestu útgáfuna af SS pylsulaginu og um besta frumsamda lagið.

Hvergerðingurinn Gígja Marín Þorsteinsdóttir var sú sem bar sigur úr býtum í keppninni og hlaut eina milljón króna í verðlaun fyrir sigurinn.

„Ég er auðvitað himinlifandi með niðurstöðuna,“ segir hin tvítuga Gígja Marín í tilkynningu frá SS. Gígja Marín segist hafa verið að vinna að tónlist í tvö til þrjú ár, en sigurlagið, I know, er fyrsta lagið sem hún gefur út ein.

„Ég var í unglingahljómsveit fyrir nokkrum árum sem gaf út eitt lag,“ bætir Gígja við brosandi og segir planið nú vera að hella sér út í tónlistina af fullum krafti.

Út úr Skúrnum og fram í sviðsljósið

„Gígja Marín er lifandi dæmi um það sem Skúrnum var ætlað að gera. Planið var að draga lítt þekkt tónlistarfólk út úr Skúrnum og fram í sviðsljósið þar sem við hin fáum að njóta hæfileika þeirra. Gígja Marín er sannarlega verðugur sigurvegari í þessum hluta keppninnar og lagið frábært,“ segir Hafþór Úlfarsson, deildarstjóri markaðsdeildar SS.

Þrjár útgáfur af pylsulaginu

Keppninni um frumsamda lagið er lokið, en keppnin um bestu útgáfu SS pylsulagsins heldur áfram í ágúst. „Þjóðin, ásamt dómnefnd, hefur nú valið þrjár útgáfur af pylsulaginu til áframhaldandi þátttöku. Í sumar munum við því sýna þrjár mismunandi útgáfur af sömu auglýsingunni fyrir SS pylsur, hver með mismunandi útgáfu af laginu. Þjóðin kýs svo sína uppáhalds útgáfu sem verður kynnt um miðjan ágúst,“ segir Hafþór að lokum, en sigurvegararnir í þeirri keppni fá í sinn hlut tvær milljónir króna.

Nýjar fréttir