2.8 C
Selfoss

Húsasmiðjan lækkar verð timbri og pallaefni um 10% 

Vinsælast

Húsasmiðjan hefur tilkynnt um lækkun á nánast öllu timbri um 10% og hefur lækkunin þegar tekið gildi.

Markaðsverð á timbri hefur almennt farið lækkandi á mörkuðum þó eitthvað sé að hægja á því núna.  Það er stefna Húsasmiðjunnar að þessar lækkanir skili sér til viðskiptavina.  Þar sem verið er að losa sendingar á lægri verði en sést hafa undanfarið er því nýtt og lægra verð tekið strax upp auk þess sem það timbur sem er á lager er lækkað.

„Síðasta sumar tilkynntum við töluverða verðlækkun á timbri, eða allt að 10% á pallaefni og ákveðnum viðartegundum. Fyrir áramót lækkuðum við allt styrkleikaflokkað timbur um 15%.  Nú tilkynnum við um 10% flata lækkun á nær öllu timbri, s.s. burðarvið, mótatimbri, grindarefni og gagnvarinni furu.*  Húsasmiðjan hefur sem dæmi lækkað burðarvið samtals um 30% frá því sem verðið var hæst á síðasta ári. Þetta eru því umtalsverðar verðlækkanir og sannarlega jákvætt innlegg á tímum frétta um vöruverðshækkanir og hækkun byggingakostnaðar. Einnig er pallasumarið komið af stað og þetta er sannarlega jákvæð byrjun á því,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.

*Það timbur sem ekki lækkar flatt núna er harðviður og lerki.

Random Image

Nýjar fréttir