6.7 C
Selfoss

Jón Vignir semur til þriggja ára

Vinsælast

Miðjumaðurinn knái, Jón Vignir Pétursson, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.

Jón Vignir hefur á undanförnum árum stimplað sig inn sem lykilmaður í liði Selfoss, bæði innan vallar sem utan. Hann spilaði 24 af 26 leikjum liðsins á síðasta tímabili og hefur verið í byrjunarliði í báðum leikjunum í Mjólkurbikarnum í ár.

,,Við erum gífurlega ánægð með þennan nýja samning við Jón. Það vita allir okkar stuðningsmenn hversu mikilvægur Jón er liðinu og það er frábært að ungir Selfyssingar séu að framlengja við félagið og taka þátt í uppbyggingunni. Jón er frábær fyrirmynd fyrir unga iðkendur félagsins sem vilja ná langt og spila fyrir meistaraflokk,” segir Dean Martin, þjálfari meistaraflokks karla.

Jón Vignir og meistaraflokkur karla eru nú á fullu í undirbúningi fyrir Lengjudeildina sem hefst 5. maí. Selfoss mætir Leikni R. í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins miðvikudaginn 19. apríl klukkan 18:00.

UMF Selfoss

Nýjar fréttir