-1.6 C
Selfoss

FSu er orðinn UNESCO-skóli

Vinsælast

Fjölbrautaskóli Suðurlands er orðinn UNESCO-skóli. Alls eru UNESCO-skólar á Íslandi því orðnir 17 talsins, einn leikskóli, sex grunnskólar og tíu framhaldsskólar. FSu hefur verið með sérstaka áfanga í boði um heimsmarkmiðin sem allir nýnemar skólans verða að taka. Á haustönn er um að ræða áfanga sem snýr að félagslegu heimsmarkmiðunum og á komandi vorönn verður kenndur áfangi sem snýr að umhverfismálum.

Kristrún María Heiðberg, verkefnastjóri UNESCO-skóla hélt fyrirlestur um heimsmarkmiðin fyrir nemendur skólans ásamt því að funda með stjórnendum og starfsfólki skólans um UNESCO-skóla. Í kjölfarið var ákveðið að sækja um UNESCO aðild. Leiðandi kennari í FSu í þessum efni er Ragnheiður Eiríksdóttir. UNESCO –skólar er eitt elsta skólanet í heimi, starfrækt frá árinu 1953. Skólarnir eru nú um 12.000 talsins og starfa í yfir 180 löndum um allan heim. UNESCO-skólar leggja áherslu á heimsmarkmiðin, starfsemi SÞ, alþjóðasamvinnu og frið og mannréttindi.

Nýjar fréttir