11.7 C
Selfoss

Fyrsta skóflustungan tekin að íbúðakjarna fyrir fatlað fólk

Vinsælast

Fyrsta skóflustunga að íbúðakjarna fyrir fatlað fólk að Nautahaga 2 var tekin föstudaginn 18. nóvember. Í kjölfarið var samningur Mineral ehf og Arnardrangs hses undirritaður í Grænumörk.

Með ákvörðun stjórnar Bergrisans og samþykkis aðildarsveitarfélaga var ákveðið að ráðast í stofnun hses félags en það rekstrarfyrirkomulag miðar að sjálfbærni byggingar og reksturs húsnæðis fyrir fatlað fólk. Málaflokkur fatlaðs fólks var fluttur frá ríki til sveitarfélaga árið 2011. Frá þeim tíma hefur ekki verið byggt húsnæði fyrir fatlað fólk í umdæmi Bergrisans en nýjasti íbúðakjarninn – Birkimörk, var byggður árið 2007.

Það er mikilvægt að fólk sem vill búa á eigin heimili geti látið þann draum rætast. Þörfin á svæðinu er mikil og því fagnaðarefni að við séum að fara af stað með bygginu sex íbúða kjarna sem mun veita sértæka þjónustu samræmi við kröfur sem gerðar eru í lögum og reglugerðum.

Undirbúningur þessa verkefnis hefur verið í gangi frá árinu 2018. Margar hendur hafa komið að verkefninu en segja má að það hafi að fullu farið af stað árið 2020 með greiningu á lóðarkostum og grunn þarfagreiningu. Í kjölfarið var unnin ítarleg þarfagreining þar sem fjöldi hagsmunaaðila kom að en í slíku ferli þarf að vanda mjög vel til verka enda húsnæðið hannað út frá ákveðnum þörfum sem miða að því að íbúar lifi sjálfstæðu lífi.

Þeir aðilar sem hafa komið að verkefninu eru stjórn Bergrisans, byggingarnefnd verkefnisins og matsnefnd, fulltrúar notendaráðs fatlaðs fólks, fulltrúar forstöðumanna og ráðgjafa

Að auki komu að ferlinu ytri ráðgjafar frá Verkís, VSB og ÁS styrktarfélagi sem hefur langa og mikla reynslu af byggingu og rekstri húsnæðis fyrir fatlað fólk ásamt HLH ráðgjöf.

VSB verkfræðistofa hefur verið í samstarfi um undirbúning verkefnisins og mun halda áfram að halda utan um verkefnið samkvæmt samningi þar um.

Ákveðið var að fara í alútboð og bárust tvö tilboð í verkið. Matsnefnd um verkefnið fjallaði um tilboðin eftir fyrirframgefnum viðmiðum og varð níðurstaðan sú að óska eftir samvinnu við fyrirtækið Mineral ehf. Hafa aðilar í kjölfarið átt í samningaviðræðum og samvinnu um hönnun hússins.

Tímalína verkáætlunar verður uppfærð miðað við þær tafir sem hafa orðið en núverandi tímaás miðar við að tilvonandi íbúar geti flutt inn í lok janúar 2024.

Dagmar Þorsteinsdótttir, framkvæmdastjóri Mineral undirritaði samninginn fyrir hönd Mineral ehf og Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, stjórnarformaður Arnardrangs hses, fyrir hönd félagsins. Í panil sátu Bjarki Guðmundssson, hönnunarstjóri og Ása Valdís Árnadóttir, stjórnarmaður Arnardrangs. Fjarverandi er Anton Kári Halldórsson, stjórnarmaður Arnardrangs.

Nýjar fréttir