2.8 C
Selfoss

Hestur skotinn með ör í nágrenni við Selfoss

Vinsælast

Síðdegis á föstudag barst lögreglu tilkynning um að hestur hafi verið skotinn með ör í beitarstykki í nágrenni Selfoss.
Í kjölfarið framkvæmdi lögregla húsleit í nágrenni Selfoss og naut við það aðstoðar Sérsveitar ríkislögreglustjóra. Við húsleitina var grunaður einstaklingur handtekinn auk þess að hald var lagt á boga, örvar og nokkurn fjölda eggvopna.
Málið er til meðferðar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi og miðar rannsókn vel.
Random Image

Nýjar fréttir