7.3 C
Selfoss

Sumrinu lokað með spennandi hætti

Vinsælast

Þann 3. september klukkan 14 verður botninn sleginn í sýninguna Eruð þið ánægð ef þið megið spyrja um eitthvað með spennandi listamannaspjalli í Listasafni Árnesinga. Eggert Pétursson, Ingólfur Arnarsson, Kees Visser og Rúrí verða í samræðum um myndlist og alþjóðleg tengsl á áttunda áratugnum og listsköpun þeirra í dag.

Eruð þið ánægð ef þið megið spyrja um eitthvað?

Tengslamyndun milli austurs og norðurs

Sýningin hefur staðið frá 4. júní og síðasti sýningadagurinn verður þann 4. September nk. Á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar var framúrstefnulistamönnum frá austantjaldsríkjunum mikið kappsmál að tengjast hinum vestræna listheimi.

Á sama tíma var vettvangur íslenskrar samtíðarlistar að opnast upp, m.a. fyrir stefnum á borð við flúxus og póst-list. Það kom til vegna ört stækkandi tengslanets listamanna og gallería á borð við SÚM og listagalleríð að Suðurgötu 7. Þessi tvíhliða tilraun að auknum tengslum leiddi svo til fjörlegra samskipta og nokkurra sýninga ungverskra listamanna hér á landi.

Við munum varpa ljósi á vinnubrögð listamannanna við þessa tengslamyndun og sýningagerð á Íslandi, á tíma þar sem strangar hömlur voru til staðar á ferða- og tjáningarfrelsi í Austur-Evrópu.

Samvinna íslenskra og unverskra listamanna varð uppspretta spaugilegra viðburða sem vöktu fólk til umhugsunar á sama tíma og þeir báru tíðum vott um sjálfshæðni.

Sumarsýning Listasafns Árnesinga 2022 var endurflutningur þessara viðburða ásamt nýrri verkum eftir sömu listamenn sem tóku þátt í þessu samstarfi á sínum tíma og blésu með því lífi í íslenska samtímalist á áttunda áratug síðustu aldar.

Listamenn: Eggert Pétursson, Endre Tot, Gábor Attalai, Géza Perneczky, Ingólfur Arnarsson, Kristján Guðmundsson, Kees Visser, Rúrí og Sigurður Guðmundsson

Sýningarstjóri: Zsóka Leposa

Aðstoðarsýningarstjóri: László Százados

Nýjar fréttir