6.7 C
Selfoss

Iða Marsibil Jónsdóttir nýr sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps

Vinsælast

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum í morgun að ráða Iðu Marsibil Jónsdóttur í starf sveitarstjóra. Iða hefur undanfarin ár starfað sem mannauðs- og skrifstofustjóri hjá Arnarlaxi og tekið virkan þátt í mikilli uppbyggingu fyrirtækisins á Vestfjörðum. Kjörtímabilið 2018 – 2022 gengdi Iða embætti forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar og hefur því góða innsýn inn í stjórnsýslu sveitarstjórnarmála. Iða er viðskiptafræðingur að mennt og leggur stund á MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Iða Marsibil er sveitarfélaginu ekki ókunn en hún bjó um skeið á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Iða mun hefja störf þann 25. júlí næstkomandi og bíða hennar veigamikil og spennandi verkefni.

Ása Valdís Árnadóttir, oddviti sveitarstjórnar:
„Það er ánægjulegt að fá Iðu Marsibil í starf sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps. Hún kemur með ferska sýn á verkefnin og ég er sannfærð um að hún muni reynast sveitarfélaginu öflugur liðssyrkur í þeim verkefnum sem framundan eru. Við bjóðum Iðu velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins.“

Iða Marsibil Jónsdóttir, nýr sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps:
„Ég er virkilega spennt fyrir komandi verkefnum í nýju hlutverki, einnig er ég þakklát fyrir það traust sem sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps sýnir mér með ráðningunni. Grímsnes- og Grafningshreppur er frábærlega vel staðsett sveitarfélag með mikla möguleika, svæðið er mér hugleikið og hlakka ég til að taka þátt og leggja mitt af mörkum í þeirri vinnu sem framundan er.“

Nýjar fréttir