1.7 C
Selfoss

Þegar samvinna býr til samfélagsleg verðmæti

Endurbætur og stækkun Þorlákshafnar á árunum 2015-2017 undir forystu Framfarasinna er framkvæmd sem gjörbreytt hefur samfélaginu í Ölfusi með jákvæðum hætti. Hjörtur Jónsson var ráðinn hafnarstjóri Þorlákshafnar í ársbyrjun 2014 og upp úr því fóru magnaðir hlutir að gerast í góðu samstarfi starfsmanna og kjörinna fulltrúa. Þessi jákvæðu áhrif af verkefninu ná langt út fyrir nærsvæði Þorlákshafnar og styrkja þau grunn atvinnuuppbyggingar á Suðurlandi.  Hugmynd ein og sér gerir hana ekki að veruleika, hún verður að vera raunsæ, verulega vel útfærð með sterkri framtíðarsýn og haldið frá kastljósi fjölmiðla. Allur undirbúningur þessarar hugmyndar var með þeim hætti og vel var haldið utan um framkvæmdina. Skipulega var unnið að öflun verkefna allt frá byrjun sem skilaði t.a.m. samningi við Smyril Line sem ekki byggði á neinum tilviljunum.

Þróunin er í samræmi við upphaflegar áætlanir

Sögunni allri er hægt að fletta upp í ítarlegum greinargerðum með fjárhagsáætlunum á síðasta kjörtímabili á vefsíðu Ölfuss, www. olfus.is. Það er gaman að sjá að Þorlákshöfn vex og dafnar í takti áætlanir sem þá voru gerðar og að framtíðarsýnin er að teiknast upp eins og við sáum hana fyrir 8 árum síðan. Eftirfarandi er tekið úr greinargerðinni sem skrifuð var haustið 2014: „Með framangreindum framkvæmdum, er áætlað að stærri skip geti athafnað sig innan hafnar sem opnar á möguleika á að fá inn stærri fragtskip en nú, skemmtiferðaskip sem alls ekki koma í dag og einnig stórar vöru- og fólksflutningaferjur. Auk þess sem þjónustugetan við núverandi viðskiptavini myndi aukast verulega strax.“  Framtíðarsýnin hefði vart geta verið betur sett á blað í ljósi sögunnar.  Sérfræðingarnir sem komu að gerð þessara greinargerða eða öllu heldur stefnumörkun, voru starfsfólk sveitarfélagsins í samstarfi við kjörna fulltrúa. Þegar slík samvinna og virðing er viðhöfð verða til samfélagsleg verðmæti.

Þorlákshöfn vex hraðar en aðrar hafnir á Íslandi

Það er áhugavert að fara yfir nokkrar tölulegar staðreyndir og samanburð úr ársreikningum. Árið 2010 var Þorlákshöfn 11. stærsta höfn landsins í tekjum talið, 2016 var hún í 10. sæti, 2018 var hún í 8. sæti og stekkur upp í 6 sæti árið 2020.  Tekjur Þorlákshafnar hafa vaxið hlutfallslega mun meira frá árinu 2016 en tekjur þeirra hafna sem fyrir ofan eru á listanum.  Samanburður vegna 2021 liggur ekki fyrir en ljóst er að Þorlákshöfn heldur áfram að vaxa sem sýnir hversu verðmæt þessi hugmynd er sem lögð var á borð í Ráðhúsi Ölfuss í byrjun árs 2014.  Eftirfarandi mynd segir meira en mörg orð:

Ég er tilbúinn til deila af reynslu minni og þekkingu og vinna fyrir ykkur af heilindum að framförum og umbótum í sveitarfélaginu okkar og óska því eftir ykkar stuðningi í komandi kosningum þann 14. maí. Setjum X við B og vinnum saman að bjartri framtíð Ölfuss.

Gunnsteinn R. Ómarsson,
fyrrverandi bæjarstjóri Ölfuss,
3. sæti á lista XB Framfarasinna í Ölfusi

Nýjar fréttir