6.7 C
Selfoss

Vetrarleikar FSu

Vinsælast

Góð þátttaka var á Vetrarleikum Hestabrautar FSu þann 3. mars. Það var Unnsteinn Reynisson frá Hurðarbaki í Flóa sem rúllaði vetrarleikum ársins upp á gæðingnum Styrk frá sama bæ. Það var erfitt færi og mikil hálka sem reyndi mikið á knapana, sem urðu að ríða eftir aðstæðum.

Kristín Hrönn Pálsdóttir frá Dverghamri í Flóa, á hestinum Gaumi frá Skarði, varð í öðru sætið og Sunna Lind Sigurjónsdóttir, frá Efstu-grund undir Eyjafjöllum, endaði þriðja á Sókrates frá Árnanesi. Sunna Lind hlaut einnig reiðmennskuverðlaunin frá hestavöruversluninni Baldvin og Þorvaldur.

Mjólkurtöltið sigraði Arndís Ólafsdóttir frá Halakoti við Selfoss, á Álfasteini frá Magnússkógum, en hann er stóðhestur úr ræktun ömmu og afa Arndísar.  Sunna Lind Sigurjónsdóttir var önnur á heimaræktaða hestinum Skjálfta frá Efstu-Grund og Svandís Ósk Pálsdóttir frá Stokkseyri varð þriðja á hesti sínum Prinsi frá Kolsholti 3.

Fyrsta árs nemendur á hestabraut sáu um allan undirbúning og framkvæmd mótsins og tókst það virkilega vel, þrátt fyrir erfiðar veður aðstæður. Vetrarleikar FSu eru orðnir skemmtileg hefð sem hefur verið haldin á ári hverju í sambandi við Káta daga hjá FSu, allt frá árinu 2006.

Hestamannsfélagið Sleipnir á Selfossi lánaði nemendum völlinn og svæðið til þess að halda mótið og er samstarf hestabraut FSu og hestamannafélagsins afar dýrmætt og í stöðugri þróun. Nemendafélag FSu sáu um verðlaunapeningana.

Fleiri styrktaraðilar komu að mótinu og gáfu fleiri fyrirtæki á suðurlandi vegleg verðlaun. Efstu sætin, bæði í tölti og mjólkurtölti, hlutu fallega blómvendi frá Húsasmiðjunni/Blómaval. Einnig voru glæsileg verðlaun frá Byko, Bíóhúsinu, Vor, Kaffi krús, Stúdíó S, Dýraríkinu og Vefjunni.

Kristín Hrönn og Gaumur.
Þorvaldur Logi og Greifi.
Verðlaunahafi í tölti.
Unnsteinn og Styrkur.
Sunna Lind og Sókrates.

 

 

 

 

Nýjar fréttir