-0.9 C
Selfoss

Díana Lind Sigurjónsdóttir gefur kost á sér í 3. sæti

Vinsælast

Díana Lind Sigurjónsdóttir gefur kost á sér í 3. sæti á lista Framsóknar í Árborg, í prófkjöri flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Díana Lind býr á Selfossi ásamt eiginmanni sínum og tveimur sonum. Hún er leikskólakennari að mennt, en hún lauk meistaragráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem deildarstjóri í leikskóla á Selfossi.

„Í gegnum starfið mitt hef ég fengið þann heiður að kynnast fullt af dásamlegu fólki, bæði nemendum, foreldrum, samstarfsfólki og öðrum í skólasamfélaginu. Starfið felur í sér náið samstarf og eru dýrmæt tengsl sem myndast, en í gegnum það hef ég öðlast aukna innsýn inn í líf barnafjölskyldna hér í Árborg. Ég tel það vera mikinn styrk því það skiptir máli að þeir sem sitja í stjórn sveitarfélagsins séu í tengslum við fólkið í samfélaginu, þeirra raddir skipta miklu máli og vil ég vera talsmaður þeirra.

Síðastliðin ár hafa barnafjölskyldur horft til Árborgar sem fjölskylduvænan stað og valið sér búsetu hér til frambúðar. Hjarta hvers bæjarfélags eru börnin og er það skylda okkar að búa þeim gott líf í sinni heimabyggð, þannig þegar þau vaxa úr grasi og standa á eigin fótum þá er allt til alls hér. Að hér sé samfélag sem gefur einstaklingum tækifæri til þess að blómstra og dafna. Í gegnum tíðina hefur það tíðkast að börn sem búa á landsbyggðinni flytjast á brott til þess að sækja skóla og vinnu í borgina.

En í Árborg eru breyttir tímar. Þessi aukna fólksfjölgun hefur í för með sér aukna uppbyggingu og tækifæri, en það skiptir máli að vandað sé vel til verka og að samfélagið okkar sé byggt upp með heildrænni framtíðarsýn. Í svona hröðum vexti má þó ekki missa sjónar á því að halda innviðum traustum og hlúa að því sem fyrir er. Með því sköpum við öruggt og heilbrigt samfélag fyrir alla, unga sem aldna.“

Random Image

Nýjar fréttir