1.7 C
Selfoss

Hætta á gróðureldum nú um áramótin

Vinsælast

Nú líður að lokum ársins 2021. Einstaklega þurrt er nú á suðvesturhorninu og gróður mjög þurr. Lítið þarf því til að koma af stað gróðureldum sem getur valdið mikilli eyðileggingu á gróðri, dýralífi og jafnvel sett menn og mannvirki í hættu.

Brunavarnir Árnessýslu vilja því árétta að fólk sýni ýtrustu varkárni nú um áramótin við notkun á flugeldum og meðferð elds.

Hafa þarf í huga að skjóta ekki upp flugeldum á stöðum þar sem hætta er á að glóð /eldur geti farið í gróður og kveikt gróðurelda.

Nauðsynlegt er að hafa við hendina slökkvitæki, garðslöngu, eða vatnsfötur með vatni við notkun flugelda ef eldur fer í gróður. Ef upp kemur eldur, hringið strax í 112 og gerið öðrum á svæðinu viðvart um hættuna

Förum varlega því lítill neisti getur orðið að miklu báli.

Brunavarnir Árnessýslu óska landsmönnum öllum gleðilegs árs.

Nýjar fréttir