0.6 C
Selfoss

Níu sunnlensk verkefni hljóta samfélagsstyrk Krónunnar

Vinsælast

Krónan veitti 25 verkefnum og aðilum styrki og fengu níu verkefni styrk áSuðurlandi. Krónan hefur í ár úthlutað rúmum sjö milljónum króna úr styrktarsjóði sínum sem er ætlað að styrkja verkefni sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar. Verkefnin sem hlutu styrki á Suðurlandi eru eftirfarandi:

  • Rafíþróttadeild Dímonar á Hvolsvelli, fyrir uppbyggingu á rafíþróttadeild.
  • Afrekshugur á Hvolsvelli, fyrir afsteypu af styttu Nínu Sæmundsdóttur í miðbæ Hvolsvallar.
  • Reiðskólinn á Bjarnastöðum í Ölfusi, fyrir búnaði og uppbyggingu.
  • Dansakademían á Selfossi, fyrir fyrstu nemendasýningu nýs dansskóla.
  • Sundfélag ÍBV í Vestmannaeyjum, fyrir sunddeild barna.
  • Listasmiðja náttúrunnar í Vestmannaeyjum, fyrir myndlistarnámskeið barna þar sem áhersla er lögð á sköpun sem er samtvinnuð við náttúru og útiveru.
  • Foreldrafélag leikskólans Bergheima í Þorlákshöfn, fyrir kaup á Bambahúsi til að rækta grænmeti.
  • Ægir í Þorlákshöfn, fyrir knattspyrnudeild barna.
  • Björgunarsveitin Víkverji í Vík, fyrir uppbyggingu.

Að sögn Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar, hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með uppgangi þeirra verkefna sem hafa hlotið samfélagsstyrki Krónunnar í gegnum árin.

„Við hjá Krónunni erum afar glöð með fjölda og gæði styrktarumsókna í ár og greinilegt að mikill metnaður er lagður í þau verkefni sem snúa að lýðheilsu og hreyfingu barna og ungmenna, sem og uppbyggingu í okkar nærsamfélagi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Það er okkur sönn ánægja að leggja þessum aðilum og verkefnum lið í þeirra vegferð,“ bætir Ásta við.

Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næsta styrktarár á heimasíðu Krónunnar 1. maí 2022. Umsóknarfrestur verður til og með 31. ágúst 2022.

Nýjar fréttir