-0.6 C
Selfoss

Spennandi málþing fyrir íbúa Árborgar 60 ára og eldri

Vinsælast

Þann 27. október næstkomandi er fyrirhugað að halda málþing fyrir alla íbúa Árborgar 60 ára og eldri á Hótel Selfoss frá kl 13-16. Skráning á málþingið fer fram í þjónustuveri Árborgar í síma 480-1900 og samdægurs á staðnum frá kl. 12:30 þegar húsið opnar. Tilgangurinn með málþinginu er að stefna saman fyrrgreindum íbúum  Árborgar til þess að veita þeim fræðslu í formi fyrirlestra og borðakynninga, bjóða þeim til þátttöku í stefnumótunarvinnu auk þess að sýna frá menningarferðum sem farnar hafa verið síðastliðið ár í sveitarfélaginu. Starfsmenn sveitarfélagsins munu taka á móti málþingsgestum og afhenda þeim dagskrá dagsins.

Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri í Árborg mun setja málþingið og Heiða Ösp Kristjánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu mun kynna dagskrá dagsins. Díana Gestsdóttir lýðheilsufulltrúi mun stýra dagskránni. Dagskráin verður með málþingsfyrirkomulagi þar sem hver og einn þátttakandi getur sett saman sína dagskrá og farið á milli sala og dagskrárliða eftir áhuga og úthaldi hvers og eins. Dagskráin verður þrískipt með eftirfarandi hætti:

Salur 1: Kvikmyndasýning þar sem sýnd verða myndbönd sem tekin hafa verið upp í menningargöngum í Árborg síðastliðið ár. Farið hefur verið í eftirfarandi göngur: Fuglafriðlandið í Flóanum og Hallskot, saga Selfoss, saga Eyrarbakka, saga Stokkseyrar og ganga um nýja miðbæinn á Selfossi.

Salur 2: Boðið verður upp á fyrirlestra. Þrír fyrirlestrar verða í boði:

13:20-14:20 Geir Gunnar næringarfræðingur -næring og efri ár

14:20-14:30 Hlé

14:30-15:00 Guðrún Jóhanna iðjuþjálfi – Iðja, heilsa og umhverfi eftir sextugt

15:00-15:10 Hlé

15:10-15:50 Réttindi við starfslok

Salur 3: Einstaklingum verður boðið á þátttökuþing þar sem fjallað verður um þemu sem tengjast þjónustu og stefnumótun við aldraða í sveitarfélaginu. Til þess að móta þemun sem ræltt verður um hefur verið settur upp tillögukassi í Grænumörkina þar sem allir íbúar sveitarfélagsins geta skilað inn hugmyndum fyrir umræðu á þátttökuþingi. Einnig verður óskað eftir tillögum frá þeim árgöngum sem mæta í 75 ára kaffi sveitarfélagsins sem verður haldið 21. október. Eftir þingið verður unnið úr þeim tillögum og upplýsingum sem fram koma, afraksturinn kemur til með að vera gefinn út sem hluti af stefnumótun í málaflokknum.

Boðið verður upp á kynningarbása þar sem fyrirtæki og félagasamtök munu kynna sig og sína starfsemi. Starfsmenn sveitarfélagsins verða með kynningarbás með kynningarbækling um starfsemi sveitarfélagsins og leiðbeiningar um hvernig hægt sé að sækja um þá þjónustu sem í boði er. Ennþá eru lausir kynningarbásar ef stofnanir og fyrirtæki hafa áhuga á að taka þátt, hægt er að senda e-mail á netfangið sigrunek@arborg.is.

Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan málþinginu stendur en einnig verður tilboð á kaffibolla og kökusneið á veitingastaðnum Riverside fyrir þá sem kjósa að setjast niður á milli dagskrárliða eða eftir málþingið. Málþingið er íbúum sveitarfélagsins að kostnaðarlausu og meðal annars fjármagnað með styrk frá félagsmálaráðuneytinu. Það er von mín að málþingið muni efla enn frekar þjónustuna við íbúa Árborgar og sem flestir sjái sér fært að taka þátt.

Heiða Ösp Kristjánsdóttir

Deildarstjóri Félagsþjónustu Árborgar

Random Image

Nýjar fréttir