10 C
Selfoss
Home Fréttir Anna María Gunnarsdóttir býður sig fram til formanns KÍ

Anna María Gunnarsdóttir býður sig fram til formanns KÍ

0
Anna María Gunnarsdóttir býður sig fram til formanns KÍ
Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands.

Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, gefur kost á sér í embætti formanns KÍ. Anna María tilkynnti þetta á Facebook í gærkvöld.

Anna María hefur gegnt embætti varaformanns KÍ síðan 2018 en kjörtímabilið rennur út í apríl á næsta ári. Þar áður sinnti Anna María trúnaðarstörfum fyrir Félag framhaldsskólakennara. Anna María var íslenskukennari og hefur starfað við Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem hún hóf kennsluferil sinn og lengst af í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.

Anna María er Sunnlendingur, ólst upp í Laugarási í Biskupstungum, stundaði nám í Menntaskólanum að Laugarvatni en hefur verið búsett í Hafnarfirði síðustu ár.

Formannskosningar Kennarasambandsins fara fram í byrjun nóvember og formannsskipti verða á þingi sambandsins í apríl á næsta ári.

 

Í færslu Önnu Maríu á Facebook, þar sem hún tilkynnti um að hún ætli að gefa kost á sér kemur fram:

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til embættis formanns Kennarasambands Íslands. Ég vil þakka þeim sem hafa hvatt mig til þess að bjóða mig fram.

Frá 2018 hef ég starfað sem varaformaður sambandsins og þar áður starfaði ég sem kennari um árabil og einnig með og fyrir Félag framhaldsskólakennara. Ég hef fundið mig vel í þessu starfi og sinnt fjölmörgum áríðandi verkefnum fyrir kennara og vil gefa kost á mér til að gera það áfram.

Að mínu mati er afar mikilvægt að fylgja fast eftir ýmsum umbótamálum sem unnið hefur verið að á kjörtímabilinu. Ég vil nefna þrennt sérstaklega: Í fyrsta lagi þarf að fjármagna og fylgja eftir aðgerðaáætlun menntastefnu sem meðal annars á að tryggja áframhald aðgerða til að fjölga kennaranemum, veita skólum fjármagn og frelsi til innleiðingar stefnunnar á eigin forsendum og byggja upp skólaþjónustu og stuðning á landsvísu. Í öðru lagi þarf að bæta kjör kennara og uppræta þá djúpu kynbundnu misskiptingu sem til staðar er á íslenskum vinnumarkaði og í samfélaginu öllu. Í þriðja lagi vil ég halda áfram að þróa starfsemi Kennarasambands Íslands og efla þjónustu við félagsfólk.

Síðustu þrjú ár hef ég unnið í teymi með fráfarandi formanni og við höfum unnið með öllum helstu hagaðilum Kennarasambandsins. Mikil breyting hefur orðið til batnaðar í samstarfi sambandsins með ytri aðilum. Ég vil byggja ofan á þann grunn og eiga í traustu og málefnalegu samstarfi við stjórnvöld, háskólana, erlenda samstarfsaðila, önnur stéttarfélög, menntamálastofnun, ríkissáttasemjara og fleiri. Nái ég kjöri mun ég leggja mig fram um að styðja við nýjan varaformann, búa til öflugt teymi okkar beggja sem og stuðla að góðu samstarfi okkar við stjórn og starfsfólk sambandsins.

Formaður Kennarasambands Íslands þarf að vera talsmaður alls félagsfólks, láta sig varða hagsmuni allra aðildarfélaga og vera málsvari skólafólks í heild. Ég mun leggja mig sérstaklega fram í því hlutverki. Það sem sameinar okkur öll er margfalt fleira en það sem sundrar. Það eru grundvallarhagsmunir okkar allra að á Íslandi sé mjög öflug stétt kennara og stjórnenda sem geri til sín og annarra miklar faglegar kröfur.

Ég mun leggja mig fram um að gæta hagsmuna leikskólans, grunnskólans, framhaldsskólans og tónlistarskólans. Þá tel ég mikinn mannauð felast í kennurum á eftirlaunum í faglegu og félagslegu ljósi. Þann auð vil ég taka þátt í að virkja. Eins þarf að halda áfram að auka tengsl við kennaranema því rödd þeirra er sterk er kemur að mótun menntakerfis til framtíðar.

Það er fágætt dauðafæri í íslenskum menntamálum um þessar mundir. Það er mikilvægt að nýta færið vel. Fái ég stuðning til þess treysti ég mér til að leiða starfsemi Kennarasambandsins næstu árin á farsælan og uppbyggilegan hátt.“