1.1 C
Selfoss

Fimmtugasta og sjöunda starfsárið að fara af stað

Vinsælast

Fimmtugasta og sjöunda starfsár Karlakórs Selfoss er að hefjast núna í lok september. Boðað er til kynningarkvölds fyrir nýja félaga mánudaginn 27. september kl. 20:00 og í framhaldi af því verður fyrsta æfing kórsins. Eru því bæði nýir og eldri félagar hvattir til að mæta þetta kvöld. Verkefnaval vetrarins er ekki endanlega ákveðið, en þar verða trúlega í bland eldri og þekkt karlakórslög og svo ný verk, útsett af stjórnanda kórsins; Skarphéðni Þór Hjartarsyni. Píanóleikari kórsins verður, eins og undanfarin ár, Jón Bjarnason organisti í Skálholti.

Æft verður á mánudagskvöldum í félagsheimili kórsins að Eyravegi 67, Selfossi, kl. 20:00-22:30.

Aðalfundur Karlakórs Selfoss var haldinn 13. september sl. og þar var stjórn kórsins endurkjörin, en formaður hans er Ómar Baldursson.

Jólatónleikar

Að venju verða jólatónleikar á dagskrá kórsins og er sérstaklega leitast við að hafa þá hátíðlega og um leið skemmtilega. Væntanlega verður sungið í Selfosskirkju og Skálholtskirkju um miðjan desember. Aðgangur að jólatónleikunum er eins og fyrr ókeypis og allir velkomnir.

Starfið á nýju ári

Fastur liður í starfsemi Karlakórs Selfoss undanfarin ár eru herrakvöld um miðjan janúar. Þar gæða kórfélagar og gestir þeirra sér á sviðum og saltkjöti. Á útmánuðum einbeita söngmenn sér svo að undirbúningi vortónleika sem skv. venju hefjast á sumardaginn fyrsta í Selfosskirkju, en kórinn mun væntanlega syngja á fernum vortónleikum í lok apríl og byrjun maí 2022. 

Allt fer þetta samt eftir framvindu heimsfaraldursins, sem sett hefur alla félagsstarfsemi úr skorðum undanfarin tæp tvö ár. En með bjartsýni í huga er vonast til að þessi áform um starfsemi Karlakórs Selfoss á komandi mánuðum geti gengið eftir. – Sjáumst hressir 27. sept. nk.

-VBr.

Nýjar fréttir