0.3 C
Selfoss

Listnám og sýning myndlistarnema FSu

Vinsælast

Myndlistarnemar FSu halda nú áfram uppteknum hætti að setja upp sýningu í opinberu sýningarrými utan skólans. Það eru nemendur í framhaldsáföngum sem fá  þjálfun í uppsetningu og kynningu á eigin verkum. Að þessu sinni eru það nemendur í áföngunum Myndlist og Straumar og stefnur á þriðja þrepi sem sýna í Listagjánni á Bókasafni Árborgar 10. – 30. september. Verkin eru unnin á vorönn 2021.

Í áfanganum Myndlist eru tekin fyrir nokkur myndefni, uppstilling, andlit og fantasíur og þau unnin í fjölbreytta stíla og með fjölbreyttum aðferðum.

Í áfanganum Straumar og stefnur er unnið með nokkrar fagurfræðilegar kenningar, innihald verka og útlit. Í báðum áföngum eru lokaverkefni með öllum þáttum og þá er málað með akrýl á striga.

Það er margt á seiði á listalínu FSu og áhugi nemenda mikill

Boðið er upp á fjölbreytt úrval áfanga sem opnir eru öllum nemendum burtséð frá því hvort þeir eru á brautinni eður ei. Það er alltaf gefandi og gaman fyrir kennsluna að fá eldra fólk með áhuga á skapandi greinum inn í hinn hefðbundna nemendahóp.  Meðal hins mikla úrvals af skapandi áföngum sem boðið er upp á í FSu ásamt myndlist má nefna stafræna smiðju, Fablab, kvikmyndun, leiklist, textíl hönnun, grafíska hönnun og grafíska miðlun.

Veggjalistin er sýning sem alltaf er opin áhorfendum en veggurinn við bílastæði skólans var allur endurnýjaður vorið 2020. Nemendur og kennarar í myndlist lögðust á eitt og útkoman er frábær útimyndlistarsýning. Það er líka gaman að segja frá því að fyrrum nemandi okkar á listalínunni, Þóranna Ýr Guðgeirsdóttir vinnur nú að veggjalist víðs vegar um Selfoss.

Það er stefna okkar að miðla verkum nemenda sem víðast og til þess höfum við vefsíðu á Facebook sem heitir FSu myndlist, nýsköpun og miðlun. Þar má sjá úrval verka úr þeim áföngum sem við kennum. Bæði þjónar síðan sem kennsluefni og ekki síður fyrir listunnendur að njóta.

Myndlistarkennarar FSu

Lísa og Ágústa

 

 

 

Random Image

Nýjar fréttir