7.3 C
Selfoss

Opnun HÚM stúdíós á Selfossi

Vinsælast

Við vinkonurnar ákváðum fyrir ekki svo löngu að láta drauma okkar rætast og opna saman stúdíó á Selfossi. Stað þar sem við værum með vinnuaðstöðu í bland við sölurými. Við fundum heppilegt húsnæði og við tóku tvær vikur frá því að við fengum húsnæðið afhent þar til við héldum opnunarteiti í gær. Stúdíóið er á 2. hæð að Austurvegi 9.

Í rýminu var áður saumastofa en það voru rifnir niður veggir, múrað, slípað, sparslað og pússað auk þess sem veggir og gólf voru máluð.

Skemmtilegt er að geta sagt frá því að við gerðum nánast allt sjálfar. Nú erum við komnar með glæsilegt rými sem verður gaman að skapa í.

Við erum þrjár eins og er, Hanna Siv Bjarnardóttir, ljósmyndari en hún er með stúdíóaðstöðu á staðnum, auk þess sem hún selur ljósmyndaverk.

Eyrún Guðmundsdóttir, Bowen-tæknir, hægt er að panta tíma hjá henni en einnig er hún húsgagnasmiður og er að þróa spennandi vörur. Dúdda (Kristrún Helga Marinósdóttir) selur ullarverk. Verk tveggja listakvenna eru í sölu hjá okkur. Teikningar eftir Eddu Linn Rise og blómaplattar eftir Steinunni Birnu Guðjónsdóttur.

Enn er möguleiki á að leigja sér aðstöðu hjá okkur og/eða koma vörum í umboðssölu. Þetta er frábært tækifæri fyrir konur sem eru að koma sér á framfæri að geta stutt við hvora aðra í fyrstu skrefunum í rekstri.

Opnunartímar: Þegar skiltið er úti er opið! Fastir opnunartímar eru fim. kl. 12-18, fös. kl. 12-18. og lau. 11-16 og svo skv. samkomulagi.

Þið finnið okkur á Facebook undir: HÚM stúdíó og á insta-gram undir hum_studio_selfoss.

Nýjar fréttir