3.9 C
Selfoss

Missir- sumarsýning í Húsinu á Eyrarbakka

Vinsælast

Persónulegir hlutir verða gjarnan dýrgripir eftirlifenda þegar ástvinur deyr. Þannig geyma látlausir hlutir líkt og pappírsbátur, herðasjal og sparibaukur oft mun dýpri sögu en virðist í fyrstu. Löngu seinna rata slíkir gripir á safn; kannski þegar tíminn hefur grætt sárin. Á sumarsýningunni Missir í borðsstofu Hússins á Eyrarbakka er ljósinu beint að þessum fallega sið og tilfinningagildi gripanna heiðrað.

Sögutími sýningarinnar færir gesti aftur á fyrri hluta 20. aldar þegar ekki þótti sjálfsagt að allir næðu háum aldri. Mikil breyting hefur orðið á viðhorfi samfélagsins síðan þá. Dauðinn var fólki mun nálægari áður fyrr, en sorgin var borin í hljóði. Viðsnúningur hefur orðið svo nú er talið mikilvægt og eðlilegt að tjá sig um missi en dauðinn sjálfur virðist fólki fjarlægari.

Byggðasafn Árnesinga býður alla velkomna á opnun sýningarinnar í Húsinu á Eyrarbakka kl. 16.00 sunnudaginn 20. júní. Safnið er opið alla daga 11-18 fram til 15. september og eftir samkomulagi á öðrum tímum.

Nýjar fréttir