2.3 C
Selfoss

Arðsemi hamingjunnar á landsbyggðinni – Ný heimssýn á nýjum tímum

Vinsælast

Á innihaldsríkri ráðstefnu laugardaginn 17. apríl nk. verður fjallað er um ríkidæmi landsbyggðarinnar. Hver eru tækifæri landsbyggðarinnar? Hvernig tökumst við á við breyttan veruleika? Hver er vegferð frumkvöðuls, hindranir, árangur og hvert er sunnlenska-módelið? Fjallað verður um sjálfbærni, nýsköpun, úthýsingu starfa, skapandi markaðssetningu, nándina í fjarlægðinni – og hvað svo? Af hverju fækkaði íbúum London um 10% í fyrra? Eru litlir bæir að endurheimta sinn fyrri sjarma?

Covid hefur sannað að fólk getur sett lífsgæðin í forgang, flutt starfið með sér á sinn drauma búsetustað eða skapað tækifæri hvar sem er á landinu. Íbúum stórborga í Evrópu hefur fækkað undanfarið ár og smærri borgir og bæir hafa endurheimt sinn fyrri sjarma. Ríkidæmi landsbyggðarinnar verður því til umfjöllunar á ráðstefnunni Ný heimssýn á nýjum tímum.

Um ræðir gífurlega mikilvægt byggðamál og tækifæri til að halda landinu í byggð. Til að vel takist til er nauðsynlegt að styrkja samfélög á landsbyggðinni og bjóða upp á öfluga grunnþjónustu fyrir íbúa. Tækifærin á landsbyggðinni eru óteljandi og þurfa störf án staðsetningar einungis tvennt, nettengingu og samgöngur.

Landsbyggðadeildir Félags kvenna í atvinnulífinu  FKA tóku höndum saman og verða með innihaldsríka ráðstefnu þar sem fjallað er um ríkidæmi landsbyggðarinnar. Á ráðstefnunni skautum við yfir sviðið og ræðum tækifæri í takt við þessa nýju heimssýn á nýjum tímum.

 

 

Nýjar fréttir