10 C
Selfoss

Team Rynkeby stefnir á París í ár

Vinsælast

Team Rynkeby er góðgerðarverkefni sem fagnar 20 ára afmæli á árinu. Það var árið 2017 sem íslenskt lið tók í fyrsta sinni þátt í verkefninu, en þar með voru komin lið frá öllum Norðurlöndunum. Við hittum Gunnar Bjarka Rúnarsson, verslunarstjóra hjá Byko og spurðum aðeins út í málið, en hann er einn af þeim sem er í íslenska liðinu í ár.

 

Markmiðið að safna fyrir börn með alvarlega sjúkdóma

Hvernig verður maður liðsmaður í Rynkeby liðinu? „Til að taka þátt í verkefninu þarf fólk að sækja um með formlegum hætti, í framhaldinu er liðið valið og skipað í byrjun september ár hvert.  Þau sem eru valin í liðið hefjast síðan handa við að safna styrkjum t.d. hjá fyrirtækjum og stofunum og vinna að verkefninu á ýmsan annan hátt. Árið 2021 eru liðin 59 með rúmlega 2300 hjólurum og 440 í aðstoðarliði frá öllum Norðurlöndunum, Þýskalandi, Sviss ásamt einu samevrópsku liði.  Markmiðið er það sama hjá öllum liðunum sem er að safna styrkjum sem allir fara til barna með alvarlega sjúkdóma í hverju landi fyrir sig,” segir Gunnar Bjarki.

 

Íslenska teymið aldrei stærra

„Íslenska teymið hefur aldrei verið stærra. Við erum um 45 hjólarar og eins og staðan er núna eru um 8 sem eru í aðstoðarliði en stefnt er á að fjölga í þeim hópi,“ segir Gunnar Bjarki aðspurður um fjölda liðsmanna frá Íslandi. Eru þetta allt vanir hjólreiðamenn sem veljast í liðið? „Nei, aldeilis ekki. Eitt af markmiðum Team Rynkeby er að liðið sé byggt upp af fólki úr sem flestum atvinnugreinum, á öllum aldri og sem jafnastri skipting milli kvenna og karla.  Þannig að það er ekki ætlast til þess að liðið sé byggt upp af afburðar fólki í hjólreiðum.”

 

Miklar æfingar að baki hjá keppendum

Eins og áður sagði eru ekki endilega allir sem koma að verkefninu afburðafólk í greininni. Við spyrjum Gunnar hvernig sé að takast á við svona áskorun. „Þetta er heilmikið auðvitað en mikill stuðningur af félögunum í liðinu og liðsheildin góð. Í vetur erum við búin að vera á hjóla hvert og eitt t.d. á trainerum en einnig hafa verið sameiginlegar hjólaæfingar á hjólaforritinu Zwift.  Seinni hluta mars stefnum við að því að fara að hjóla saman úti en frá og með apríl verða æfingar alla þriðjudaga og laugardagsmorgna.  Við erum líka með skylduæfingar þar sem lengsta æfingin er 200 km æfing.  Eins og áður sagði hjóla allir alla leiðina þannig við æfum okkur að hjóla þétt á eftir hvert öðru til að nýta skjólið en við þurfum líka að læra að treysta hvert öðru algjörlega því við óvæntar breytingar inn í miðjum hóp getur farið illa.”

 

Íslensk fyrirtæki stutt myndarlega við verkefnið

Aðspurður um hvernig gangi með að safna styrkjum segir Gunnar: “Það hafa fjölmörg fyrirtæki stutt við bakið á okkur í gegn um tíðina. Ég get svo stoltur sagt frá því að BYKO kom mjög myndarlega að verkefnimu í á ren þeir styrktu okkur um tvær milljónir. Í fyrra söfnuðust um 25 milljónir og allir styrkir sem safnast hafa hafa farið til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Alls hafa safnast rúmlega 75 milljónir frá upphafi, en Team Rynkeby er lang stærsti styktaraðili SKB. Þetta er góðgerðarverkefni sem á sér ekki hliðstæðu,” segir Gunnar Bjarki stoltur.

Stefnt á París ef Kófið leyfir

Í fyrra var ekki hægt að fara til Parísar, en venjan er að hjóla niður Evrópu. Í fyrra var hjólað hringinn í kringum landið. Vonir standa til þess að hægt verði að hjóla ferðina í júlí 2021. „Öll liðin 59 hjóla sömu vikuna 10-17 júlí ,,niður’’ Evrópu og enda sama daginn saman í garði  í París. Í okkar tilviki er leiðin um 1300 km en við leggjum af stað frá Kolding á Jótlandi. Frá áramótum fram að ferð þarf hver og og einn hjólari að hjóla 2500 km til að undirbúa sig en það getur alveg tekið á sitjandann að sita á hnakknum rúma 8 klukkutíma á dag í heila viku í ferðinni sjálfri, segir Gunnar Bjarki að lokum.

Nýjar fréttir