7.3 C
Selfoss

Ný bók greinir frá gleymdu flugslysi

Vinsælast

Bókin Martröð í Mykinesi – Íslenska flugslysið í Færeyjum 1970 er komin út. Höfundar eru Grækaris Djurhuus Magnussen og Magnús Þór Hafsteinsson. Í þessari bók er sögð ótrúleg saga af flugslysi sem hefur legið í þagnargildi í hálfa öld. Bókin geymir vitnisburði fjölda fólks sem komst lífs af úr slysinu eða tók þátt í björgunararðgerðum, bæði Íslendinga, Færeyinga og Dana. Auk þess er mikill fjöldi ljósmynda í bókinni sem hafa aldrei sést áður.

Laust fyrir hádegi 26. september 1970 brotlenti Fokker Friendship-vél Flugfélags Íslands í roki, þoku og rigningu undir tindinum Knúki á Mykinesi í Færeyjum. Alls voru 34 um borð í fullsetinni vélinni. Fjögurra manna áhöfn var skipuð Íslendingum og tveir úr farþegahópnum voru frá Íslandi.

Flak vélarinnar fannst ekki fyrr en nokkrum klukkustundum síðar. Þá voru átta látnir en 26 á lífi. Björgunaraðgerðir hófust við afar erfiðar aðstæður. Mykines var einangruð klettaeyja með fáum íbúum sem lifðu af búskap, fuglatekju og fiskveiðum. Fólkið þar stóð frammi fyrir hópslysi sem enginn hafði ímyndað sér að gæti orðið í Færeyjum.

Björgunarlið, sem var sent til Mykiness, varð að glíma við illviðri og miklar torfærur á leið sinni á slysstaðinn. Áhöfn flugvélarinnar og þau úr farþegahópnum sem gátu staðið á fótum urðu sjálf að ganga ofan af fjallinu til byggða.

Martröð í Mykinesi lýsir einstakri og ógleymanlegri sögu sem hefur ekki nema að örlitlu leyti komið fyrir sjónir íslenskra lesenda fyrr. Hér má lesa um hetjudáðir, hugprýði, fórnir og æðruleysi, en líka um þjáningar, sorg og eftirsjá. Enginn sem lætur sig varða mannleg örlög getur látið þessa bók fram sér fara.

Færeyska sjónvarpið var nýverið við upptökur í Fokker Friendship-vélinni á Flugsafni Íslands á Akureyri en það hyggst nú í vetur sýna heimildakvikmynd um slysið.

 

 

 

Nýjar fréttir