6.7 C
Selfoss

Hanna Siv sýnir ljósmyndir í Gallerí Stokk

Vinsælast

Hanna Siv Bjarnardóttir verður með ljósmyndasýningu á Gallery Stokk í júlí 2020. Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 3. júlí kl. 17 til 23 en Bryggjuhátíð er sett þennan sama dag. Léttar veitingar verða á boðstólnum.

Yfirskrift sýningarinnar er „Heima

Hanna Siv Bjarnardóttir heimsótti nokkra af eldri íbúum Stokkseyrar. Í stuttri heimsókn er hægt að komast að ýmsu um manneskjuna sem þar býr en heimilið endurspeglar persónuleika og sögu fólks.

Fólk safnar að sér húsgögnum og smáhlutum, sumir hlutir hafa mikið tilfinningalegt gildi á meðan öðrum er hent eftir stutta viðkomu á heimilinu.

„Mér finnst áhugavert að sjá hvaða hlutum fólk safnar að sér í gegnum ævina. Í litlu samfélagi þekkjast allir og vita nokkurn veginn hvað er að gerast í lífi hvers og eins. Ég kannast við allt fólkið sem ég heimsótti en hafði komið heim til fæstra. Það er sérstök upplifun að koma í heimsókn til alls þessa fólks og sjá hvernig þau hafa komið sér fyrir“.

Um Hönnu Siv:

Hanna Siv Bjarnardóttir útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum í janúar 2017. Hún hélt sýningu í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2018, hefur sett upp yfirlitssýningu á verkum sínum á kaffihúsinu Kaffigott á Stokkseyri, ásamt samsýningum og útskriftarsýningu í Ljósmyndaskólanum.

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar „Heimaföstudaginn 3. júlí. kl. 17:00 – 23:00 á Gallery Stokk.

Sýningunni lýkur sunnudaginn 26. júlí.

Stokkur Art Gallery, Hafnargötu 6, Stokkseyri

 

Nýjar fréttir