7.3 C
Selfoss

Sigurður Böðvarsson sinnir starfi framkvæmdastjóra lækninga á HSu

Vinsælast

Sigurður Böðvarsson yfirlæknir göngu- og lyflækningadeildar mun sinna starfi framkvæmdastjóra lækninga í fjarveru Hjartar Kristjánssonar sem er kominn í ársleyfi.

Sigurður hefur starfað á HSU síðan 1. desember 2018. Þar áður starfaði hann sem sérfræðingur í krabbameinslækningum í Gundersen Health System, La Crosse í Wisconsin, Green Bay Oncology, Green Bay, Wisconsin og sem sérfræðingur í krabbameinslækningum við Landspítala. Sigurður er sérfræðingur í krabbameinslækningum og hefur áralanga reynslu af meðferð krabbameinssjúklinga, rannsóknum, kennslu og stjórnun, var um tíma formaður Læknafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Læknafélags Íslands. Hann lauk meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Bifröst árið 2009.

 

Nýjar fréttir