1.7 C
Selfoss

Rokkum þetta í gang, Hvítahúsið vaknar úr dvalanum

Vinsælast

Á laugardaginn næsta verður fyrsta opnun Hvítahúsins á Selfossi eftir covid samkomubann, en hljómsveitin Dúndurfréttir mun ríða á vaðið og svala tónleika þörf sunnlendinga og vera með stórtónleika á laugardagskvöldið 6. Júní n.k. Dagskrá kvöldsins hjá Dúndurfréttum verður svona „ Best of rock´n roll „ Mjög fjölbreytt blanda af allskonar rokki, mjúkt og hart þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hljómsveitina skipa: Matthías Matthíasson, Pétur Örn Guðmundsson, Einar Þór Jóhannsson, Ólafur Hólm og Ingimundur Óskarsson. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og opnar húsið kl. 20, einungis 200 miðar eru í boði og eru áhugasamir beðnir um að tryggja sér miða í tíma. Miðasala er hafin á Tix.is

Nýjar fréttir