4.9 C
Selfoss

Vetrarstarf Karlakórs Selfoss, kynningarkvöld fyrir nýja félaga

Vinsælast

Vetrarstarf Karlakórs Selfoss er að hefjast í september. Kynningarkvöld fyrir nýja félaga, já og eldri, verður haldið mánudagskvöldið 23. september kl. 20:00. Fyrsta æfing vetrarins verður mánudagskvöldið 30. september kl. 20:00 í félagsheimili kórsins að Eyravegi 67. Komandi starfsár er það 55. í sögu kórsins, sem var stofnaður 1965. Mörg spennandi og skemmtileg verkefni eru fram undan og söngskrá vetrarins (lagaval) verður væntanlega kynnt á fyrstu æfingunni. Æft verður einu sinni í viku, á mánudagskvöldum. Um og yfir 60 söngmenn hafa starfað með kórnum undanfarin ár. Stjórnandi Karlakórs Selfoss er Skarphéðinn Þór Hjartarson og píanóleikari Jón Bjarnason. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir og eldri söngmenn eru hvattir til að mæta.

 

 

Nýjar fréttir