8.9 C
Selfoss

Nýjar skólasóknarreglur taka gildi í FSu

Vinsælast

Nýjar skólasóknarreglur taka gildi í Fjölbrautaskóla Suðurlands frá og með haustönn 2019. Helstu nýungar eru að nú sjá forráðaaðilar nemenda yngri en 18 ára og nemendur eldri en 18 ára um að skrá beint í Innu rafrænt ef þeir eru veikir eða verða fjarverandi samdægurs. Ákvæði um þetta er að finna í grein nr. 2 í skólasóknarreglunum.

Ekki á lengur að hringja á skrifstofu skólans og tilkynna veikindi eða fjarveru. Skráninguna þarf að framkvæma fyrir kl. 11:00 samdægurs. Ekki er hægt að skrá nemanda eftir það.

Fjarverukvóti er á öllum áföngum eftir stærð þeirra (2, 3, 4, 5, 8 og 9 einingar) eins og fram kemur í grein nr. 5. Innan þess eru allar fjarvistir, hvort sem eru vegna veikinda, skrópa, læknisheimsókna, sjúkraþjálfunar og fjarvera vegna annarra tilfallandi aðstæðna.

Vottorðum varðandi lengri veikinda skal skila áður en fjarverukvóti klárast, sbr. grein nr. 7 í skólasóknarreglunum.

 

Nýjar fréttir