0.3 C
Selfoss

„Þetta líður hjá“  afhjúpað í Hveragerði

Vinsælast

Listaverkið „Þetta líður hjá“ eftir Elísabetu K. Jökulsdóttur var afhjúpað við skemmtilega og fjölmenna athöfn við upphaf Blómstrandi daga í Hveragerði á fimmtudag.

Verkið er reist af Hveragerðisbæ í tilefni af 70 ára afmæli bæjarfélagsins en hugmyndina kynnti Elísabet fyrir bæjaryfirvöldum á afmælisárinu 2016 eftir kynni hennar af Varmá og unglingunum í bænum.

Listaverkið felst í því að stærðar steini eða bjargi hefur verið komið fyrir á bakka Varmár þar sem áin rennur flesta daga lygn og falleg. Myndhöggvarinn Matthías Rúnar Sigursson hefur höggvið út stól í hið 12 tonna bjargs sem sótt var í nágrennið eftir forskrift listamannsins. Stóllinn snýr í hásuður og í honum geta allir notið notið kyrrðar og fallegs útsýnis yfir ána.

Með setu í stólnum og verkinu sjálfu erum við minnt á að að líkt og áin líður hjá þá munu vandamál og verkefni lífsins sem oft virðast óyfirstíganleg einnig líða hjá. Verkið fjallar um vináttusamband okkar og náttúrunnar. Og hvað náttúran vill segja okkur á viðkvæmum stundum. Og að okkur er óhætt að lifa með tilfinningum okkar.

Elísabet hefur tileinkað unglingum þetta einstaka og fallega verk.

Fjölmenni mætti á árbakkann þegar verkið var afhjúpað en þar flutti Elísabet sjálf ræðu, listamennirnir Guðbrandur Loki Rúnarsson og Laufey Jóhannesdóttir fluttu ljóð og Sigurður Ingólfsson lék á trompet standandi út í miðri Varmá. Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri afhjúpaði verkið áður en viðstaddir prófuðu stólinn. Var það mál manna að þarna væri kominn nýr áfangastaður í Hveragerði og að með staðsetningu þessa verks hefði opnast nýr staður til útivistar með breyttu og bættu aðgengi að Varmá þar sem hún er hvað fegurst.

Stutt gönguleið er að listaverkinu frá bílastæði Leikskólans Undralands við Þelamörk.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við afhjúpunina.

Random Image

Nýjar fréttir