-0.6 C
Selfoss

Greiddu 3 milljónir í hraðasektir

Vinsælast

Það er því miður hætt að heyra til tíðinda að erlendir ökumenn séu stöðvaðir vegna hraðaksturs hér á landi. Gærdagurinn [þriðjudagurinn] hvað þetta varðar var engin undantekning hjá lögreglunni á Suðurlandi en alls voru 45 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í umdæminu í gær. Stærstur hluti þessara ökumanna voru sem fyrr segir erlendir ferðamenn.

Sá sem hraðast ók var mældur á 152 km hraða á Mýrdalssandi og kvaðst ökumaður hafa gleymt sér þar sem hann hafi verið svo hugfanginn og snortinn af landslaginu. Tveir aðrir ökumenn voru mældir á sviptingarhraða eða 146 og 147 km hraða.

Nær allir ökumenn greiddu sektina á staðnum og ef eingöngu er horft á þá 26 ökumenn sem kærðir voru fyrir hraðakstur á Mýrdalssandi milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs greiddu þeir samtals rúmlega 1,6 milljónir króna í sekt.

Ekki er lengra síðan en síðastliðinn föstudag 9.ágúst að erlendir ferðamenn veltu jeppabifreið sinni á þessum vegarkafla á þjóðvegi 1 í Eldhrauni skammt vestan við Kirkjubæjarklaustur.

Valt bifreiðin að minnsta kosti sjö veltur og endaði á hvolfi ofan í hraungjótu og flutti þyrla Landhelgisgæslunnar þá fjóra sem í bifreiðinni voru á slysadeild LSH í Fossvogi.

Ekki er vitað hvort hraðakstur hafi átt þátt í umræddu slysi sem er til rannsóknar hjá embættinu en engin úr slysinu er í lífshættu.

Ef litið er á heildarsektargreiðslu þessara 45 ökumanna sem kærðir voru fyrir hraðakstur í gær hjá embættinu nemur sektarfjárhæðin samtals um 3 milljónir króna.

Lögreglan á Suðurlandi mun hér eftir sem endranær vera virk í hraðaeftirliti í umdæminu ásamt því að kanna ástand ökumanna og með því reyna að draga úr möguleikum á alvarlegum slysum í umferðinni.

Frétt af fb-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Random Image

Nýjar fréttir