-0.6 C
Selfoss

Minningarreitur vígður í Hellisskógi

Vinsælast

Þriðjudaginn 23. júlí sl. var vígður í Hellisskógi minningarreitur um Ólaf Hákon Guðmundsson. Jónína Magnúsdóttir eiginkona Ólafs heitins afhjúpaði minningarskjöld í reitnum að viðstöddum vinum og vandamönnum og ávarpaði gesti.

Ólafur var virkur félagi í Skógræktarfélaginu Selfoss og sat í stjórn félagsins í mörg ár. Síðustu árin sá hann um verkstjórn í sumarvinnunni í Hellisskógi og sá um viðhald á bekkjum og stígum í skóginum.

Gerð minningarreitsins var unnin af starfsmönnum skógræktarfélagsins í samstarfi við aðstandendur Ólafs. Plantað var runnum, settur upp minningarskjöldur á klettavegg, lagður stígur og komið fyrir bekk. Þór Sigmundsson steinsmiður útbjó minningarskjöldinn.

Random Image

Nýjar fréttir