-1.6 C
Selfoss

Stefnumót við Múlatorg á laugardag

Vinsælast

Sumarhúsið og garðurinn býður til menningar- og markaðshátíðar laugardaginn 27. júlí að Fossheiði 1 á Selfossi. Sumarhúsið og garðurinn hefur staðið fyrir hátíðinni frá árinu 2014.

„Við bjóðum heim velunnurum okkar, áskrifendum og þjóðinni eins og hún leggur sig. Garðurinn er í fullum blóma og skartar sínu fegursta. Við erum að sýna nú í fyrsta sinn lóðréttan gróðurvegg, nýtt kryddjurtabeð og verkfærageymslu með allskyns lausnum sem gæti verið öðrum fyrirmynd. Við munum meðal annars ræða við gesti um pottaplöntur og garðyrkjufræðingur mun hafa umsjón með pottaplöntuskiptum og umpottun þeirra, við seljum mold og potta á staðnum. Þannig að ef þú lesandi góður átt auka pottaplöntur til skiptanna, komdu og býttaðu við næsta mann á hátíðinni,“ segir Auður og bætir við að í gróðurhúsinu í bakgarðinum verði Óli Finnsson garðyrkjufræðingur með fræðslu um lífrænar skordýravarnir og til sýnis humlubú, samskonar og garðyrkjubændur nota til frjóvgunar á tómötum og gúrkum.

Auk fræðslu þá verður Páll Jökull ljósmyndari með ljósmyndasýningu, bæði landslagsmyndir og af blómum úr garðinum. Í ár veitir Sumarhúsið og garðurinn í fyrsta sinn „Rósina“, Hvatningarverðlaun Sumarhússins og garðsins. Þau eru veitt þeim sumarhúsaeigendum eða garðáhugamönnum sem sýnt hafa framúrskarandi hugmyndaauðgi og elju. Auður segir að á Stefnumótinu sé einstök stemning, gestum líki vel að koma og hlýða á lifandi tónlist sem flutt er á pallinum í garðinum.

Í ár er það hljómsveitin Skorsteinn sem flytur evrópska þjóðlagatónlist. Svo er það markaðurinn sem hefur þróast og stækkað ár frá ári. „Við erum afar hreikin í ár að kynna lista- og handverksmarkaðinn því að með okkur verða kúnstnerar og hagleiksfólk sem er að gera alveg dásamlega hluti. Allt svo vandað og fallegt. Við erum svo með til sölu plöntur, garðvörur, erlendar garðyrkjubækur og auðvitað alla 25 árgangana af Sumarhúsinu og garðinum og bækurnar okkar. Mæðgurnar í Pylsuvagninum verða með okkur og Pönnukökuvagninn þannig að enginn fer svangur heim.“

Stefnumót við Múlatorg er frá kl. 11 til kl. 17. Auður segist eiga von á miklum fjölda og hvetur fólk að koma snemma til að njóta sem best þess sem hún og hennar samstarfsmenn bjóða upp á.

Nýjar fréttir