-0.9 C
Selfoss

Höfðingleg gjöf til leikskóla í Árnessýslu

Vinsælast

Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur kom færandi hendi í Ráðhús Árborgar, þriðjudaginn 16. júlí sl. með þjálfunarefni sem bætir framburð barna, eykur orðaforða og undirbýr læsi. Hún kom einnig sama dag með sams konar gjöf á skrifstofu Hveragerðisbæjar sem hún færði leikskólabörnum á starfssvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.

Bryndís er í samstarfi við IKEA, LÝSI, Marel, Raddlist og hjónin Björgólf Thor og Kristínu Ólafsdóttur um að gefa öllum leikskólum á Íslandi þjálfunarefni sem bætir framburð barna, eykur orðaforða og undirbýr læsi.

Bryndísi ásamt Önnu Stefaníu Vignisdóttur, talmeinafræðingi og Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði en þær veittu hinni rausnarlegu gjöf viðtöku. Mynd: Hveragerði.

Bryndís hefur starfað í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og hefur m.a. gefið út námsefni undir heitinu Lærum og leikum með hljóðin sem ætlað er öllum barnafjölskyldum og skólum. Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki í skólum. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar. Í tilefni af þessum tímamótum í starfi hefur Bryndís ákveðið að gefa efnið til allra leikskóla hér á landi. Það var mögulegt með eigin framlagi og stuðningi ofangreindra fyrirtækja og einstaklinga sem leggja áherslu á að hlúa þurfi að íslenskunni og læsi barna.

Allir leikskólar á landinu, fá nú í sumar, heildstætt efni úr Lærum og leikum með hljóðin að gjöf til að nýta í starfi sínu með leikskólabörnum. Aukaefni eins og púsl, límmiðar og vinnusvuntur, sem styðja við hljóðanámið með fallegum stafamyndum, fylgir með í skólapökkunum. Einnig munu fimm íslensk smáforrit fyrir iPad vera gefin samhliða til  skólanna og foreldra íslenskra barna.

Það er mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri með áherslu á þá þætti sem rannsóknir sýna að skipta meginmáli fyrir framtíðarnám barna. Lærum og leikum með hljóðin kennir framburð hljóða, hljóðavitund og bókstafi, þjálfar hljóðkerfisþætti, eykur orðaforða og hugtakaskilning, auk þess að gefa fyrirmynd að setningagerð og mörgum málfræðiþáttum íslenskunnar. Bryndís mun svo fylgja efninu eftir með vefnámskeiðum.

Random Image

Nýjar fréttir