5 C
Selfoss

Selfyssingar leika annað hvort við Malmö eða Spartak Moskvu

Vinsælast

Handknattleikslið Selfoss mætir annað hvort liði HK Malmö frá Svíðþjóð eða HC Spartak Moskva frá Rússlandi í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða (EHF Cup). Þetta varð ljóst þegar dregið var í fyrstu tvær umferðirnar í keppninni í höfuðstöðvum EHF í Vín í Austurríki í morgun. Selfoss mun hefja leik í Evrópukepninni á útivelli fyrstu helgina í október. Viku síðar koma svo annað hvort Malmö eða Spartak Moskva í heimsókn í Hleðsluhöllina.

Malmö og Spartak mætast 31. ágúst eða 1. september í Svíþjóð og svo viku síðar í Rússlandi.

Með sigri fer liðið áfram í 3. umferð keppninnar en þangað komst Selfoss einmitt í fyrra. Þar tapaði liðið fyrir sterku liði Azoty Pulawy frá Póllandi.  Sigurvegaranna úr 3. umferð bíður svo sæti í riðlakeppni EHF Cup.

Nýjar fréttir