6.7 C
Selfoss

Bændur áhugasamir um sýningarreiti búvörudeildar SS á Hvolsvelli

Vinsælast

Alls voru lagðir út 28 sýningarreitir á vegum búvörudeildar SS á Hvolsvelli. Markmiðið er að gestir og gangandi geti séð áhrif mismunandi áburðarskammta á korn og grænfóður. Þá var sáð mismunandi grastegundum.

Tegundir sem sáð var eru:

Korn: Anneli og Aukusti í alls 12 reiti. Allir reitir fengu 70 kg/ha af köfnunarefni en mismunandi af fosfór og kalí.

Grænfóður: Vetrarrýgresi Sikem og vetrarrepja Hobson í alls 12 reiti. Allir reitir fengu mismunandi áburðarskammta af N,P og K.

Gras: Hávingull Norild, túnvingull, Reverent, vallarfoxgras Snorri og Engmó í alls 4 reiti. Allir reitir fengu sama áburðarskammt, 600 kg/ha af NPK 15-7-12.

Í samtali við SS kemur fram að reitirnir séu vel merktir og bændur og aðrir áhugasamir hvattir til að virða fyrir sér reitina.

Nýjar fréttir