7.1 C
Selfoss

Elvar íþróttamaður Rangárþings eystra 2018

Vinsælast

Þann 17. júní sl. var tilkynnt um val á íþrótta­manni ársins 2018 í Rangárþingi eystra. Fjór­ir einstaklingar voru tilnefndir af íþróttafélögunum á svæðinu. Íþrótta- og æskulýðs­nefnd­ valdi síðan úr þeim hópi.

Í reglugerð kemur fram að íþrótta­maðurinn skuli vera 15 ára eða eldri og hafa stundað íþrótt sína með íþróttafélagi í sveitarfélag­inu eða vera með lögheimili þar. Fjórir einstaklingar voru til­nefnd­ir, en það voru: Andri Már Óskarsson golfari, Birta Sigur­borg Úlfarsdóttir frjálsíþrótta­kona, Elvar Þormarson hesta­íþrótta­maður og Þormar Elvars­son knattspyrnumaður.

Svo fór að íþróttamaður ársins 2018 var valinn Elvar Þor­mars­son. Elvar var í úrslitum á flest­um mótum sem hann tók þátt í, þar með talið Íslandsmót full­orðinna og einnig á Landsmótinu sem haldið var í Reykjavík. Hann var einnig á meðal þeirra hröðustu í skeiðgreinum á árinu 2018.

Elvar Þormarsson – hestaíþróttir
Elvar var í úrslitum á nánast öllum mótum sem hann tók þátt í, þar með talið Íslandsmóti fullorðna og einnig á Landsmótinu sem haldið var í Reykjavík. Hann var einnig meðal þeirra hröðustu í skeiðgreinum á árinu 2018.

Andri Már Óskarsson – golf
Andri Már er einn af bestu kylfingum landsins. Hann hefur stundað golf frá unga aldri og hefur náð góðum árangi. Hann æfir og spilar mikið, kemur vel fyrir, er yfirvegaður og kurteis, hvort heldur á golfvellinum eða í hinu daglega lífi.

Birta Sigurborg Úlfarsdóttir – frjálsar íþróttir
Birta Sigurborg er efnileg íþróttakona sem stóð sig mjög vel í frjálsum íþróttum í sínum aldurshópi árið 2018. Hún æfir frjálsar íþróttir bæði á Hvolsvelli og á Selfossi og keppir fyrir Dímon og HSK. Hún hefur bætt sinn persónulega árangur jafnt og þétt. Birta komst yfirleitt á palli í þeim hlaupum sem hún tók þátt í á síðasta ári.  

Þormar Elvarsson – knattspyrna
Þormar hefur þótt skara fram úr í hópi íþróttamanna sem æft hefur með KFR. Hann er jákvæð fyrirmynd hvað varðar metnað og þrautseigju í að bæta sig og efla á knattspyrnuvellinum. Hann hefur ávalt stundað æfingar sínar af kappi, hvort sem ér á eigin vegum eða síns félags. Hann er einstaklega fjölhæfur leikmaður og vinnusamur. Auk þess sem hann er hvetjandi og jákvæður leiðtogi. Þormar leikur nú knattspyrnu á Selfossi og var, árið 2018, valinn bæði bestur og efnilegastur í 2. flokki karla.

 

Nýjar fréttir