-0.9 C
Selfoss

Blóm í bæ í Hveragerði um helgina

Vinsælast

Bæjarhátíðin Blóm í bæ sem haldin verður í Hveragerði um helgina verður helguð grænum lífsstíl enda er undirtitill helgarinnar Græna byltingin. Hvergerðingar bjóða heim á stærsta viðburð á sviði umhverfismála, græna geirans og vistvænna farartækja, sem haldinn er á árinu.

Á viðburðinum eru gestir og íbúar hvattir til að koma og njóta blómabæjarins og góða veðursins sem spáð er sunnanlands um helgina. Á túnunum við Hótel Örk verða vistvænir bílar til sýnis og aðrir fararskjótar framtíðarinnar. Fjölbreyttir markaðir með afurðum græna geirans verða víða um bæinn, skemmtilegar gönguferðir, glæsilegar sýningar, ýmis fræðsluerindi, núvitundar- og sögugöngur, blómaskreytingar og gróður. Einnig verður kynning á hænsna- og dúfnaræktun, bý- og hunangsræktun o.fl. Um 30 faglærðir blómaskreytar taka þátt og sýna glæsilegar skreytingar í aðalgötu bæjarins og í Lystigarðinum við Fossflöt. Land Art hönnunarsýning verður í Varmárgili en sýningin er unnin úr náttúruefnum sem eru í nærumhverfinu og eyðast þær í náttúrunni með tímanum. Í gróðurhúsi við Þelamörk verður sett upp sýning á pottaplöntum og markaður og þar gefst gestum tækifæri til að heilsa upp á hann Jobba sem er apinn sem fyrir margt löngu hafði búsetu hjá Michelsen í Hveragerði. Einnig verður þar fjöldi páfagauka sem gleðja mun gesti. Endurnýting og endurvinnsla er í hávegum höfð í blómabænum og munu íbúar opna skúra og garða og bjóða ýmis konar varning til sölu.

Þetta er helgin til að koma í Hveragerði, njóta fallegs umhverfis, góða veðursins, tónlistar, góðra veitinga og gróðurs. Græna byltingin býður ykkur velkomin í Hveragerðisbæ. Allt um viðburðinn á www.blomibae.is.

Random Image

Nýjar fréttir