-0.6 C
Selfoss

70 ár frá komu þýskra landbúnaðarverkamanna til Íslands

Vinsælast

Sendiráð Þýskalands á Íslandi, Goethe stofnun í Kaupmannahöfn og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO stóðu fyrir viðburðaröð í maí og júní með þýska rithöfundinum og blaðamanninum Anne Siegel í tilefni 70 ára afmælis komu þýskra landbúnaðarverkamanna til Íslands. Viðburðirnir voru haldnir á bókasöfnum og samkomustöðum víða um land í samstarfi við viðkomandi gestgjafa. Ferð Anne hófst fimmtudaginn 30. maí á Selfossi og lauk 8. júní í Reykjavík, sléttum 70 árum eftir að landnemarnir stigu þar á land.

Þann 8. júní 1949 lagði strandferðaskipið Esja að höfn í Reykjavík með fjöldann allan af Þjóðverjum innanborðs. Þetta voru 130 konur og 50 karlmenn sem komu hingað á vegum Búnaðarfélagsins til að starfa sem landbúnaðarverkamenn. Alls komu 314 þýskir verkamenn til landsins 1949 og var þetta stærsti hópur útlendinga sem komið hafði til Íslands fram að þeim tíma, fyrir utan hernámslið Breta og Bandaríkjamanna. Margir settust hér að fyrir fullt og allt og eru afkomendur þeirra fjölmargir í dag.

Þýski rithöfundurinn, blaðamaðurinn og sagnakonan Anne Siegel hefur gert sögu þýskra kvenna á Íslandi skil í bók sinni Frauen Fische Fjorde. Þetta er saga kvenna sem af ýmsum ástæðum yfirgáfu Þýskaland eftirstríðsáranna og fluttu til þessarar afskekktu eyju sem sumar hverjar vissu ekki einu sinni hvar var. Anne hitti bæði þýska landnema og afkomendur þeirra þegar hún vann að verkinu og segir sögu þessa fólks á einstaklega lifandi hátt.

Viðburðaröð með Anne Siegel
Anne var gestarithöfundur Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur og Goethe stofnunar og dvaldi í Gröndalshúsi nú í vor. Þar vann hún að nýrri bók sem einnig tengist Íslandi. Á viðburðunum sagði Anne frá tilurð bókarinnar Frauen Fische Fjorde og sögunum sem hún heyrði við gerð hennar. Spjallið var á ensku en einnig var lesinn stuttur kafli úr bókinni í íslenskri þýðingu Magnúsar Diðriks Baldurssonar.

„Anne Siegel lýsir örlögum þýskra innflytjenda af næmi og gefur spennandi innsýn í þýsk-íslenska sögu sem hefur haft mikil áhrif á Ísland og gerir það enn,“ Kristof Magnusson, rithöfundur og þýðandi.

Anne Siegel

Þýski rithöfundurinn, blaðamaðurinn og sagnakonan Anne Siegel.

Anne Siegel (f. 1964) býr í Köln. Hún er rithöfundur, fjölmiðlakona og leikskáld. Hún kemur reglulega fram í útvarpi og sjónvarpi auk þess sem hún ferðast víða með bækur sínar og treður upp með einstaklega lifandi frásagnir. Skáldsaga hennar Nordbräute (2015) hefur hlotið mikla athygli og var tilnefnd til Hamburg bókmenntaverðlaunanna sem besta verk upprennandi höfundar. Líkt og Frauen Fische Fjorde tengist hún Íslandi og er fyrsta bókin í þríleik sem snýst um Ísland nútímans. Sú næsta mun bera titilinn Reykjavík Blues.

Meðal annarra verka Anne Siegel er ævisaga Gertu Stern, Senora Gerta (2016), sem komst á metsölulista Spiegel en hún segir sögu austurríska gyðingsins Gertu Stern sem flúði til Argentínu á tímum nasismans ásamt manni sínum. Anne kemur oft til Íslands og er að eigin sögn heilluð af landi og þjóð og þeim sögum sem hér er að finna.

70 árum á Íslandi fagnað
Sendiráð Þýskaland og samstarfsaðilar minnast þess með ýmsum hætti í ár að 70 ár eru liðin frá komu Þjóðverjanna til Íslands og var viðburðaröðin með Anne Siegel hluti þeirrar dagskrár. Meðal samstarfsaðila sendiráðsins, auk Bókmenntaborgarinnar, eru Faxaflóahafnir, Borgarsögusafn Reykjavíkur, RÚV, Goethe stofnun í Kaupmannahöfn, Bíó Paradís og HeyIceland.

Random Image

Nýjar fréttir