2.8 C
Selfoss

Valdimar með tónleika í Sólheimakirkju á morgun

Vinsælast

Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn, meðlimir í hljómsveitinni Valdimar, verða með tónleika í Sólheimakirkju laugardaginn 8. júlí nk. kl. 13:00. Hljómsveit þeirra hefur m.a. gefið út fjórar plötur og átt fjölda laga á vinsældalistum útvarpsstöðvanna í gegnum árin.

Valdimar og Örn hafa komið fram saman á hinum ýmsu tónleikum síðustu ár við góðan orðstír. Á tónleikum þeirra spila þeir lög úr ýmsum áttum, frá hljómsveitinni Valdimar og lög sem Valdimar hefur sungið með öðrum. Einnig þeirra uppáhaldslög frá öðrum tónlistarmönnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis.

Nýjar fréttir