-0.5 C
Selfoss

Sjónvarpsstöðin Hringbraut sektuð um milljón vegna þáttar um miðbæ Selfoss

Vinsælast

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að með kostun þáttarins Miðbær Selfoss í þáttaröðinni Atvinnulífið, hafi Hringbraut-fjölmiðlar brotið gegn 2. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla um bann við kostun fréttatengds efnis. Jafnframt er það niðurstaða fjölmiðlanefndar að efnistök þáttarins hafi farið í bága við 1. mgr. 42. gr. laga um fjölmiðla um bann við áhrifum kostenda á innihald og efnistök kostaðs efnis. Þetta kemur fram á heimasíðu fjölmiðlanefndar. Þar segir enn fremur:

Málið var tekið til efnislegrar meðferðar að frumkvæði fjölmiðlanefndar á grundvelli 1. mgr. 11. gr. laga um fjölmiðla, í kjölfar fyrirspurnar frá íbúa á Selfossi.

Þátturinn Miðbær Selfoss var sýndur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut og birtur á vef Hringbrautar 10. ágúst 2018. Í þættinum voru til umfjöllunar tillögur bæjarstjórnar um breytt aðal- og deiliskipulag í miðbæ Selfoss og fyrirhuguð íbúakosning um þær, sem fram fór 18. ágúst 2018. Þátturinn var kostaður af Sigtúni þróunarfélagi, framkvæmdaaðila þeirra breytingaframkvæmda sem kosið var um í íbúakosningunum.

Var það niðurstaða fjölmiðlanefndar að þátturinn teldist til fréttatengds efnis og að Hringbraut-fjölmiðlar hefðu með kostun hans brotið gegn banni við kostun frétta og fréttatengds efnis í sjónvarpi.

Í ákvörðun fjölmiðlanefndar segir m.a. að reglur um bann við kostun frétta og fréttatengds efnis gangi út á að vernda upplýsingarétt almennings, enda sé brýnt að almenningur geti mótað skoðanir sínar og dregið ályktanir út frá réttum og hlutlausum upplýsingum. Að mati fjölmiðlanefndar eigi þau sjónarmið ekki síst við í aðdraganda lýðræðislegra kosninga, hvort sem um sé að ræða kosningar sem fram fari á landsvísu eða íbúakosningar í sveitarfélögum. Mikilvægt sé að umfjöllun fjölmiðla í aðdraganda kosninga sé fagleg og vönduð, leitast sé við að varpa ljósi á ólíkar hliðar mála og forða því að notendur fjölmiðla rugli saman auglýsingum, kostuðu efni og hlutlausum upplýsingum.

Taldi fjölmiðlanefnd hæfilegt að stjórnvaldssekt vegna brotsins næmi 1.000.000 kr. Við ákvörðun sektarfjárhæðar var tekið mið af framangreindri niðurstöðu, alvarleika brots og þess að um ítrekað brot var að ræða.

Nýjar fréttir