1.1 C
Selfoss

Rangárþing ytra til samstarfs við Tryggingamiðstöðina

Vinsælast

Í lok síðasta árs var ákveðið að endurskoða allar tryggingar Sveitarfélagsins Rangárþings ytra og óska eftir tilboðum frá öllum tryggingafyrirtækjum landsins. Verkefnið var unnið undir handleiðslu Guðmundar Ásgrímssonar tryggingaráðgjafa hjá Consello.

Niðurstaða þessarar endurskoðunar og verðkönnunar var að ganga til samninga við Tryggingamiðstöðina sem skilaði inn hagstæðasta tilboðinu.

Á dögunum var gengið frá samningi til þriggja ára og rituðu þeir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, og Ágúst Kristjánsson, umboðsmaður Tryggingamiðstöðvarinnar í Rangárþingi, undir samninginn og staðfestu með handsali af þessu tilefni.

Nýjar fréttir