-1.5 C
Selfoss

Strandlengjan í Rangárþingi ytra hreinsuð

Vinsælast

Umhverfisnefnd Rangárþings ytra stóð fyrir strandhreinsun sl. laugardag þar sem stór hluti strandlengjunnar í Rangárþingi ytra var hreinsaður. Strandlína Rangárþings ytra teygir sig frá útfalli Þjórsár í vestri að útfalli Hólsár í austri. Heildarþyngd þess sorps sem hreinsað var er tæp 1000 kg. Nánast það eina sem eftir stendur í fjörunni eru leifarnar af Vikartindi. Eftir hreins­un­ina var boðið upp á súpu í íþróttahúsinu í Þykkva­bæ í boði Þykkvabæjar. Það var mál manna að hér eftir verði þessi hreinsun árleg. Strandhreinsun er samnorrænt hreinsunarátak þar sem farið er um fjörur landsins og allt rusl tínt saman en það er gert til að sporna við því að plast brotni niður í fjöruborðinu eða fari á haf út og mengi náttúru og dýralíf.

Random Image

Nýjar fréttir