8.4 C
Selfoss

Lög Jónasar og Jóns Múla flutt í Skálholtskirkju

Vinsælast

Karlakórinn Þrestir í Hafmarfirði ætlar að syngja vorið inn með vortónleikum í Skálholtskirkju 1. maí nk. kl. 14.00. Kórinn telur í dag tæplega 40 meðlimi á öllum aldri þó skráðir félagar séu rúmlega 50. Æft er í eigin húsnæði að Flatarhrauninu og eru æfingar einu sinni til tvisvar í viku.

Á tónleikunun í Skálhltskirkju varða fluttar  kóraperlur s.s. Fjallið Skjaldbreiður, Þú álfu vorrar og Ísland farsældar frón en einnig íslenskar dæguperlur eins og Tondeleyo, Jón Múla og Jónasar Árnasona lög. Ennfremur mun einn kórfélagana, Stefán Íslandi, syngja einsöng.  Undirleik annast strákar úr Tónlistaskóla Hafnarfjarðar og á píanóið leikur Pétur Valdemarsson.

Að venju er svo sungið fyrir Hafnfirðinga á 17. júní. Þrestirnir voru stofnaðir 1912 og eru því elsti starfandi karlakór landsins. Kórstjóri er Árni Heiðar Karlsson.

Nýjar fréttir