1.1 C
Selfoss

Eitt stærsta fasteignaþróunarverkefni á landinu í Ölfusi

Vinsælast

Fyrir skömmu undirrituðu Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, og Gísli Steinar Gíslason, fyrir hönd Hamrakórs ehf., samkomulag um fasteignaþróun í Sveitarfélaginu Ölfusi. Um er að ræða stærsta fasteignaþróunarverkefni á Suðurlandi í dag og eitt hið stærsta á landinu öllu. Heildarfjárfesting á svæðinu er á annan tug milljarða.

Með samkomulaginu sem gildir til 10 ára hyggjast Sveitarfélagið Ölfus og Hamrakór ehf. ráðast í samstarf um skipulag á allt að 12 hektara svæði, auk gatnagerðar og annars sem til þarf til að hægt verði að ráðast í framkvæmdir þannig að á svæðinu rísi eftirsóknarverð, hagkvæm og aðlaðandi byggð sem styrki Ölfus í sessi sem eftirsóknarverðan búsetukost.

Svæðið sem liggur miðsvæðis í Þorlákshöfn er í nágrenni við íþróttamannvirki, leik- og útivistarsvæði, grunnskóla, leikskóla, bóksafn o.fl. Sérstök áhersla verður lögð á að þar rísi hagkvæm og umhverfisvæn byggð sem mætir þörfum einstaklinga og fjölskyldna sem vilja nýta kosti höfuðborgarsvæðisins samhliða þeim gæðum sem fylgja því að búa í nánu samfélagi með mikla þjónustu. Þar verður hægt að byggja allt að 4-500 íbúðir, allt eftir því hvað markaðurinn kallar eftir.

Gangi áætlanir eftir verður hægt að hefja markvissan undirbúning núna á vordögum og verklegar framkvæmdir í beinu framhaldi.

„Ölfus er í okkar huga eitt mest lofandi vaxtarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu. Þar fara saman mjög sterkir innviðir, sem státa af óviðjafnanlegri íþróttaaðstöðu, frábærum skólum og ríkri menningarhefð og traustur bæjarandi. Eftir að hafa ráðist í framkvæmdir á Edenreitnum í Hveragerði vitum við sem er að þessi svæði búa yfir öllum kostum þess að vera úthverfi Reykjavíkur án þess að missa þá ótvíræðu kosti sem fylgja því að búa í litlu og nánu samfélagi þar sem allir þekkja alla og standa saman þegar þörf er á. Hjá okkur eru því mikilar væntingar hvað þetta verkefni varðar,“ segir Gísli Steinar hjá Hamrakór.

„Hér í Ölfusi eigum við ómæld tækifæri á mörgum sviðum og erum óhrædd við að nýta þau. Í viðbót við þau vaxtartækifæri sem við eigum í þróun atvinnutækifæra, tengd höfninni, orkunni, vatninu og landgæðum, þá verður ekki fram hjá því horft að búsetulega erum við í raun úthverfi Reykjavíkur. Það tekur ekki nema rétt liðlega 30 mínútur að aka á milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar og því auðvelt fyrir fólk að njóta samhliða þeirra kosta sem fylgja höfuðborginni og þeirra miklu búsetugæða sem hjá okkur eru. Samkomulagið við Hamrakór er mikilvægt skref fyrir okkur hvað áframhaldandi vöxt varðar. Þessir aðilar hafa sýnt að þeir eru meðal þeirra fremstu á landinu þegar kemur að fasteignaþróun. Trú þeirra á tækifærin hjá okkur eru viðurkenning á því sem við viljum standa fyrir, sem sagt tækifæri til vaxtar.  Hamingjan er hér, og við viljum gera sem flestum mögulegt að njóta hennar,“ segir Elliði bæjarstjóri í Ölfusi.

Að fyrirtækinu Hamrakór ehf. standa þeir Gísli Steinar Gíslason og Jón Helgi Erlendsson.  Þeir hafa á seinustu árum haft aðkomu að stórum fasteignaþróunarverkefnum svo sem fjölbýlishúsa á Seltjarnaresi, miðbæjarkjarna á svokölluðum Hörpureit í Reykjavík og framkvæmdum á Edenreitnum í Hveragerði.

Nýjar fréttir