-5 C
Selfoss
Home Fréttir Ný Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024

Ný Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024

0
Ný Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024
Þórður Freyr Sigurðsson.

Nú er fyrsta tímabili Sóknaráætlunar Suðurlands að ljúka, 2015 til 2019. Verkefnið um sóknaráætlun hefur þróast mikið á tímabilinu, bæði hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) sem og hjá ríki. Það má segja að tilraunaverkefninu um sóknaráætlanir landshluta sé hér með að ljúka og við taki nýtt tímabil þar sem við mörkum okkur nýja stefnu til framtíðar og byggjum á reynslu fyrra tímabils.
Sóknaráætlun Suðurlands 2015-2019 hefur skilað 68 fjármögnuðum verkefnum eða aðgerðum fyrir um 240 mkr. sem snerta byggðamál og byggðaþróun í landshlutanum. Jafnframt hefur verið úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, sem er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands, fyrir um 70 til 90 mkr. árlega yfir tímabilið. Auk þess hefur stefnumörkun Sóknaráætlunar Suðurlands haft áhrif á störf SASS á sviði byggðaþróunar, s.s. í gegnum áherslur Uppbyggingarsjóðs Suðurlands, í atvinnuþróun og ráðgjöf á vegum SASS og með einstökum verkefnum.

Íbúafundir um nýsköpun, atvinnu- og menningarmál verða haldnir nú í apríl um allan landshlutann og eru íbúar hvattir til að taka þátt í fundunum. Nánari upplýsingar um fundina á heimasíðu samtakanna sass.is.

Með lagasetningu um sóknaráætlanir frá árinu 2015 og Byggðaáætlun 2018 til 2024, hafa jafnframt verið stigin skref í þróun stefnumörkunar sem fylgt er nú eftir með fjármögnuðum aðgerðum. Meðan Byggðaáætlun tekur til landsins alls eru sóknaráætlanir landshluta einskorðaðar við sérstöðu hvers landshluta fyrir sig, með sértækum verkefnum og á ákveðnum málefnasviðum.
Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024 mun amk. innihalda eftirfarandi stefnur:
• Menningarstefna Suðurlands
• Atvinnu- og nýsköpunarstefna Suðurlands
• Umhverfis- og auðlindastefna Suðurlands
Ef ofangreind málefni höfða til þín viljum við taka vel á móti þér á íbúafundi þar sem grunnur verður lagður að stefnum í málaflokkunum. Svo stefnur okkar verði raunhæfar og tali okkar máli, þurfa íbúar að koma að mótun þeirra. Þegar hafa verið haldnir sjö íbúafundir um umhverfis- og auðlindamál á Suðurlandi með þátttöku um 200 íbúa. Íbúafundir um atvinnumál, nýsköpun og menningarmál verða nú haldnir í þessum mánuði um allan landshlutann.
Það er markmið okkar að þátttaka verði góð svo áhrif og áherslur íbúa komist til skila inn í nýja Sóknaráætlun Suðurlands 2020 til 2024. Með von um góða þátttöku og gott samstarf.

Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri Þróunarsviðs SASS og verkefnastjóri Sóknaráætlunar Suðurlands