0.6 C
Selfoss

Appelsínugul viðvörun á sunnan- og suðaustanverðu landinu

Vinsælast

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun þar sem athygli er vakin á austan stormi eða roki á suðaustanverðu landinu síðdegis til fyrramáls og má jafnvel búast við um 30 m/s í meðalvindi undir Eyjafjöllum, í Vestmanneyjum og í Öræfasveit. Á síðu Veðurstofunnar segir að full ástæða sé til að fylgjast vel með þróun spáa og viðvörunum sem eru í gildi.

Veðurspáin gerir ráð fyrir vaxandi austlægri átt og slyddu eða snjókomu Sunnanlands, en síðar rigningu. Dálítil él austast, en annars yfirleitt þurrt. Austan og síðan norðaustan hvassviðri á sunnanverðu landinu síðdegis en 23-30 m/s undir Eyjafjöllum og einnig á Suðausturlandi í kvöld og nótt.
Lengst af hægari vindur fyrir norðan, en austan og norðaustan 15-23 þar í nótt og snjókoma. Dregur smám saman úr vindi á morgun. Snjókoma norðanlands, slydda með A-ströndinni og léttir til um landið SV-vert. Mun hægari vindur annað kvöld. Hiti 0 til 5 stig sunnan til, annars víða 0 til 6 stiga frost. Hlýnar heldur Norðanlands á morgun.

Nýjar fréttir