1.7 C
Selfoss

Umhverfisstofnun lokar svæði á Skógaheiði

Vinsælast

Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir náttúruvættið Skógafoss dag hvern og gengur stór hluti þeirra upp á Skógaheiði. Vegna umferðar gesta, hlýinda og mikilla leysinga í kjölfar langvarandi frostakafla, hefur skapast gríðarlegt álag á gönguslóða og umhverfi hans á Skógaheiði ofan Fosstorfufoss. Umrætt svæði er gamall kindaslóði, hluti af gönguleið um Fimmvörðuháls sem hefur ekki verið lagaður að auknum fjölda ferðamanna. Í ljósi stöðunnar hefur Umhverfisstofnun ákveðið að loka svæðinu frá og með morgundeginum, 23. febrúar.

Lokunin er annars vegar framkvæmd af öryggisástæðum í þágu gesta en hins vegar til að vernda gróður umhverfis gönguslóðann. Lokunin nær upp frá Fosstorfufossi, um 650 metra ofan við útsýnispall Skógafoss og mun standa uns bót verður á. Stefnt er að endurskoðun lokunar eigi síðar en innan tveggja vikna eða fyrr ef ástand breytist til batnaðar. Lokunin er gerð skv. 25 gr. a. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Nýjar fréttir