Víða hefur safnast í stóra polla í hlákunni

Búið að finna niðurfallið. Nú er að brjóta sér leið í gegn. Mynd: BRV
Mynd: brv, úr safni.

Starfsmenn Sveitarfélagsins Árborgar hafa haft í nógu að snúast við að moka frá niðurföllum og veita burt vatnsaganum sem myndaðist í hlákunni sl. nótt og í morgun. Víða voru klakastykki yfir niðurföllum eða íshröngl sem hefti aðgengi vatnsins að niðurföllum. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er útlit fyrir að hitinn verði frá 0-6° fram eftir vikunni og yfirleitt frostlaust við suðurströndina.

Gullleitartæki Sveitarfélagsins Árborgar var drifið á staðinn. Mynd: BRV.

Ýmsum ráðum er beitt við að finna niðurföllin. Það voru þó minnugir menn sem á endanum höfðu rétt fyrir sér. Mynd: BRV
Ýmsum ráðum er beitt við að finna niðurföllin. Það voru þó minnugir menn sem á endanum höfðu rétt fyrir sér. Mynd: BRV
Búið að finna niðurfallið. Nú er að brjóta sér leið í gegn. Mynd: BRV
Búið að finna niðurfallið. Nú er að brjóta sér leið í gegn. Mynd: BRV
Þegar handaflið dugði ekki til kom spánný JCB grafa Árborgar og leysti málið umsvifalaust. Mynd: BRV