5.6 C
Selfoss

Elvar Örn og Perla Ruth útnefnd íþróttafólk Selfoss 2018

Vinsælast

Handknattleiksfólkið Elvar Örn Jónsson og Perla Ruth Albertsdóttir voru valin íþróttakarl og íþróttakona ársins 2018 hjá Ungmennafélagi Selfoss. Fengu þau afhent viðurkenningar á verðlaunahátíð félagsins sem haldin var í gærkvöldi. Þetta annað árið í röð sem þau hljóta þennan heiður og jafnframt var þetta annað árið sem félagið heldur sérstaka verðlaunahátíð fyrir íþróttafólk ársins.

Perla Ruth er lykilleikmaður í liði Selfoss sem leikur í Olís-deildinni. Liðið náði sínum besta árangri keppnistímabilið 2017–2018 þegar það endaði í sjötta sæti. Pera Ruth tók þátt í öllum landsliðsverkefnum ársins og stimplaði sig inn sem lykilleikmaður í landsliðinu.
Elvar Örn er lykilleikmaður í liði Selfoss í Olís-deildinni en liðið náði sínum besta árangri í deildarkeppni á árinu, lék til undanúrslita á Íslandsmóti og bikarkeppni auk þess að taka þátt í Evrópukeppni. Á liðnu ári stimplaði Elvar Örn sig inn sem byrjunarliðsmaður hjá íslenska landsliðinu ásamt því að vera valinn besti leikmaður Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Á verðlaunahátíðinni var íþróttafólk ársins í deildum félagsins einnig heiðrað, en hver deild gat tilnefnt íþróttakarl og íþróttakonu í sinni deild.
Fimleikar: Bjarni Stefánsson og Birta Sif Sævarsdóttir
Frjálsar: Kristinn Þór Kristinsson og Eva María Baldursdóttir
Handknattleikur: Elvar Örn Jónsson og Perla Ruth Albertsdóttir
Júdó: Egill Blöndal
Knattspyrna: Guðmundur Axel Hilmarsson og Magdalena Anna Reimus
Mótokross: Gyða Dögg Heiðarsdóttir
Sund: Sara Ægisdóttir
Taekwondo: Þorsteinn Ragnar Guðnason og Dagný María Pétursdóttir

Nýjar fréttir